Author: lensherra

Lífið – stórskemmtilegt drullumall

Ljósmyndasýning, aukasýningar og leikhússpjall – Leikhópurinn 10 fingur opnar ljósmyndasýningu um sköpun sýningarinnar Lífið – Aðferðin sem hópurinn notaði er einstök, sagan varð til úr vinnu með mold – Aukasýningar á verkinu í janúar og febrúar – Að lokinni sýningu 18. janúar munu aðstandendur sýningarinnar ræða við gesti Ljósmyndasýning Þann 18. janúar mun Helga Arnalds hjá leikhópnum 10 fingrum opna ljósmyndasýningu á Tjarnarbarnum, bar Tjarnarbíós. Á sýningunni verða myndir sem varpa ljósi á vinnuaðferðina sem notuð var við gerð sýningarinnar. Aðferðin sem notuð var við sköpun sýningarinnar Lífið er nokkuð einstök. Í stað þess að vinna sýninguna út frá fyrirfram...

Sjá meira

Málarekstur Síðbúinnar rannsóknar í Tjarnarbíó

Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns Hreggviðssonar. Verkið hefur verið sýnt í Bíó Paradís en á nýju ári færist þessi málarekstur Kriðpleirs yfir í Tjarnarbíó. Sýningar verða: Fimmtudaginn 15. janúar kl. 20:00 Fimmtudaginn 22. janúar kl. 20:00 Sunnudaginn 25. janúar kl. 20:00 „Síðbúin rannsókn“ er þriðja leiksýningin sem leikhópurinn Kriðpleir setur upp. Fyrri...

Sjá meira

Stutt og laggott í Þorlákshöfn

Langar þig að virkja listræna hæfileika þína? Semja leikrit, leikstýra, leika eða flytja tónlist? Eða kannski allt ofantalið? Leikfélag Ölfuss blæs til stuttverkahátíðar sem hefst með höfundakvöldum í janúar, æfingar fara fram á þriðjudagskvöldum í febrúar og um miðjan mars sýnum við afraksturinn. Allir sem hafa áhuga og hafa náð 18 ára aldri eru hvattir til að skrá sig á netfangið oddfreyja@simnet.is Höfundakvöldin verða á þriðjudögum í janúar í Bæjarbókasafni Ölfuss kl. 20, frá og með þriðjudeginum 13. janúar. Leikfélag Ölfuss...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Blóðpúður er litlaust duft sem borið er á húð og þegar það er bleytt kemur blóðeffektinn fram. Púðrið er þvínæst ósýnilegt áður en það blotnar. Hentar vel þar sem þörf er á að búa til blæðandi sár fyrir framan áhorfendur, hvort sem er á sviði eða í kvikmynd. Blóðpúðrið fæst í tveimur stærðum, 10 gr. dós á 652.- og 100 gr. dós á 3.211.-. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Gott er að...

Sjá meira

Ekki hætta að anda, frumsýning 15. janúar

Fimmtudaginn 15. janúar nk. kl. 20:00 frumsýnir leikhópurinn Háaloftið í samstarfi við Borgarleikhúsið nýtt leikverk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Ekki hætta að anda. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Fjórar konur bregðast við auglýsingu þar sem leitað er að þeim sem hafa þekkt Hákon heitinn náið en honum er lýst sem „meðalmanni á hæð með ljósar krullur.“ HANN eða hinn látni hefur sjálfur sett saman lagaval fyrir eigin jarðarför, m.a. Don ́t Hold your Breath eða Ekki hætta að anda með Nicole Scherzinger sem veldur mönnum nokkrum heilabrotum. Jafnframt hefur hann óskað sérstaklega eftir að konurnar fjórar flytji íslenska útgáfu af...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert