Author: lensherra

Arty Hour #10 í Tjarnarbíói

Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram. Arty Hour er haldinn á Tjarnarbarnum, aðgangur er ókeypis og að venju eru ljúffengar veitingar í boði á barnum. Mælendur verða: – Bjartmar Þórðarson og Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, sem sýna verkið Skepnu um þessar mundir – Tryggvi Gunnarsson og Hilmir Jensson í leikhópnum Sóma þjóðar munu fjalla um síðasta verk þeirra, MP5, sem og nýtt stykki – Ragnar Ísleifur Bragason í Kriðpleir...

Sjá meira

Uppsprettan – skyndileikhús

Næst sýning Uppsprettunnar – skyndileikhúss, verður mánudaginn 9. Febrúar. Uppsprettan, sem hefur verið að hasla sér völl í íslensku leihúslífi, hefur það að markmiði að kynna nýja íslenska höfunda og gefa leikurum og leikstjórum tækifæri á að sýna sig og hæfileika sína. Undanfarið höfum við haldið utan um æfða leiklestra á verkum í fullri lengd sem fluttir hafa verið á kaffhúsi Tjarnarbíós, en nú er komið að skyndileikhúsinu okkar. Höfundar hafa sent inn handrit og vinnur nú sérskipuð dómnefnd að því að velja þau þrjú bestu. Sólarhring fyrir sýningu fá svo leikhóparnir þrír verkin í hendur en mega ekki...

Sjá meira

Eldbarnið, söfnun á Karolina fund

Skaftáreldar eru sögusvið Möguleikhússins í nýju barnaleikriti, þar sem þessir afdrifaríku atburðir Íslandssögunnar eru séðir frá sjónarhóli barns. Lítil stúlka virðist mega sín lítils þegar veröldin tekur hamskiptum og hætturnar virðast búa við hvert fótmál. En hugrekki og hjartahlýja reynast tryggir förunautar á óvissutímum.  Eldbarnið verður frumsýnt í Tjarnarbíói laugardaginn 7. febrúar. Hér er slóð á söfnunina https://www.karolinafund.com/project/view/735 Sólveig er söguhetjan í þessu nýja leikriti Möguleikhússins. Eftir gríðarlega jarðskjálfta verður stórt eldgos og skömmu seinna steypist hraunstraumur ofan af hálendinu. Sólveig og móðir hennar verða að flýja upp í fjallshlíð, þaðan sem þær horfa á bæinn sinn fara undir hraun. Við...

Sjá meira

Danssýning í Frystiklefanum á Rifi

Föstudaginn 30. janúar verður haldin opin sýning á verkinu sem Oupa Sibeko hefur þróað og æft upp í Frystiklefanum. Verkið ber heitið Martröð. Sýningin hefst klukkan 20.00 og tekur um 20 mínútur í flutningi. Ókeypis aðgangur. Síðastliðnar vikur hefur Suður afríski listdansarinn Oupa Sibeko haft aðsetur í Frystiklefanum í Rifi. Oupa er 22 ára gamall og útskrifaður með fyrstu einkunn frá hinum virta WITS listaháskóla í Jóhannesarborg.  Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð miklum frama í heimalandi sínu og meðal annars unnið til nokkurra verðlauna fyrir framsæknar og kraftmiklar danssýningar. Bakgrunnur Oupa er í hefðbundnum afrískum dansi en...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Latex skallahettur eru vel teygjanlegar og nokkuð eðlilegar ef þær eru vel settar á. Sníða þarf hettuna til og líma niður allan hringinn. Notið skegglím, ekki vatnsuppleysanlegt. Þegar hettan er komin á er hún förðuð og púðruð og að endingu förðuð aftur með sama lit og notaður er á andlitið. Hægt er að nota hettuna aftur og aftur ef hún er tekin varlega af og geymd á gler- eða plasthaus á milli. Skallinn kostar 5.533.- Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert