Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið er Ferðin til Jólaandans. Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu.
Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau hafa allt frá æsku alist upp hjá skapfúlum og andstyggilegum frænda, honum Maríusi. Með hjálp nokkurra álfa ná þau að strjúka og lenda þar með í afar fjörugu og lærdómsríku ferðalagi, þar sem þau kynnast ólíklegustu persónum úr hinum ýmsu áttum. En hvað ætli Maríus frændi geri þá? Mun hann láta Hansínu og Grétar í friði eða ætli hann finni upp á einhverju til að eyðileggja fyrir þeim? Það kemur allt í ljós á sýningunum í Iðnó. Líkt og áður inniheldur sýningin fjölmörg vinsæl lög, óvæntar uppákomur og skemmtilega dansa.
Leikstjóri er sem fyrr Erla Ruth Harðardóttir sem sér einnig um handritsgerð ásamt þeim Elísu Sif Hermannsdóttur og Karen Ýr Jóelsdóttur. Söngstjóri er Rebekka Sif Stefánsdóttir. Danshöfundur eru þær Katrín Ásta Jóhannsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir. Leikarar eru átján talsins, allir á aldrinum 11-16 ára.
Sýningartími er rétt undir klukkustund. Sýningatímar eru virka morgna kl. 9:30 og/eða 11:00, virka eftirmiðdaga kl. 17:30 og um helgar kl. 14:00 og/eða 16:00.
Frumsýning verður sunnudaginn 29. nóvember og áframhaldandi sýningar verða í desember.
Miðaverð er kr. 1.000 – gjöf en ekki gjald, vilja margir meina
Kaup á einni sýningu (150 sæti) er tilvalið fyrir starfsmannafélög og skóla. Þá er miðaverð kr. 650 á einstakling og heildarverð fyrir sýningu kr. 97.500. Í þeim pakka er einnig piparkökur og djús fyrir áhorfendur eftir sýningu.
Miðapantanir er í miðasölu Iðnó sími 562-9700 (milli kl. 11:00-16:00 virka daga)
Fyrirspurnir og upplýsingar um sýningartíma, má einnig nálgast í síma: 861-6722 eða á borgarborn@gmail
Jólagjafasöfnun Borgarbarna fyrir Mæðrastyrksnefnd er árleg hefð. Þá geta áhorfendur komið með pakka, merktan aldri og kyni, á sýningar og leikarar sjá um að skila til Mæðrastyrksnefndar fyrir jól.