Author: lensherra

Lína Langsokkur í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði sýnir barnaleikritið Lína Langsokkur, eina ástsælustu sögu úr smiðju Astrid Lindgren. Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsímunda Efraímsdóttir Langsokkur er ekki bara hetja af því hún er sterkust í heimi, hún er hetja í afstöðu sinni til lífsins. Lína Langsokkur segir okkur að vera við sjálf og allt sem við getum orðið, en ekki reyna að vera eitthvað allt annað. Þess vegna sefur hún með fæturna á koddanum og hausinn undir sænginni: af því þannig er hún. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og tónlistarstjóri Gunnar Möller. Frumsýning er 16. nóvember og sýningar verða í Freyvangi laugardaga og sunnudaga fram...

Sjá meira

Áheyrnarprufur fyrir breskan leiklistarháskóla

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/international/international-audition-and-interview-dates/ Námsbrautir Grunnnám (Undergraduate) – Acting, BA (Hons) – Actor Musicianship, BA (Hons) – Acting Foundation – American Theatre Arts, BA (Hons) (Leiklist og leikhúsfræði) – European Theatre Arts, BA (Hons) (Leiklist og leikhúsfræði) Framhaldsnám (Postgraduate and Research) – Actor & Performer Training, MA/MFA –...

Sjá meira

Everybody´s Spectacular sviðslistahátíðin

ALÞJÓÐLEGA SVIÐSLISTAHÁTÍÐIN Í REYKJAVÍK EVERYBODY´S SPECTACULAR er árleg sviðslistahátíð sem blásið er til af LÓKAL og Reykjavík Dance Festival. Hátíðin, sem fram til þessa hefur verið haldin í lok ágústmánaðar, fer nú fram í nóvember og verður þar með enn sterkari hluti menningarvetrarins í höfuðborginni. EVERYBODY´S SPECTACULAR er einstakur vettvangur fyrir þá sem vilja kynna sér nýjustu strauma og stefnur í sviðslistum. Dagskráin teygir sig yfir 5 daga, frá miðvikudegi til sunnudags, og er sem fyrr þéttskipuð og afar fjölbreytt. Boðið verður upp á frumsýningar á íslenskum verkum eftir marga af framsæknustu sviðslistamönnum landsins, í bland við ný verk...

Sjá meira

Sprúðlandi skemmtun í Kópavogi

Tom, Dick & Harry Höfundar: Ray og Michael Cooney Þýðing og leikstjórn: Hörður Sigurðarson Ég fór í gær á sýningu Leikfélags Kópavogs á farsanum Tom, Dick & Harry eftir feðgana Ray og Michael Cooney.  Ray hefur stundum verið kallaður farsakóngurinn og hafa mörg verka hans eins og t.a.m. Með vífið í lúkunum, Beint í æð og Nei ráðherra verið sýnd hér á landi bæði hjá stofnanaleikhúsunum og hjá leikfélögum um allt land við gífurlegar vinsældir. Það er því fengur í því að fá þetta verk á fjalirnar hér á landi og ég spái því að það eigi eftir að...

Sjá meira

Blóðsystur í Stykkishólmi

Leikfélagið Grímnir sýnir Blóðsystur í Vatnasafninu að Bókhlöðustíg 19 í Stykkishólmi Leikritið Blóðsystur var samið af Guðmundi L. Þorvaldssyni og ungmennahóp Leikfélags Kópavogs 2010. Leikstjóri er Árný Leifsdóttir. Í þessu gamanleikriti er skyggnst inn í Klaustur til systranna og fylgst með því hvað drífur á daga þeirra, en heyrst hefur að sést hafi til vampýra í klaustirinu. Verkið er klukkutíma langt. Miðaverð er 2000 kr. – athugið enginn posi! Miðapantanir: Hafrún í síma 8630078 eftir kl 16. Ekki er hleypt inn eftir að sýningar eru hafnar. Takmörkuð bílastæði eru við Vatnasafnið, bent er á bílastæði við Ásbyrgi.    ...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert