Author: lensherra

Tilgangurinn helgar meðalið

Leikfélag Selfoss sýnir Glæpi og góðverk – leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur byggt á leikriti Anton Delmer Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Þegar gengið er inn í salinn í Litla leikhúsinu við Sigtún blasir við á sviðinu fremur gamaldags og hlýleg stofa. Einhverjar myndir standa upp við vegg og bíða þess að verða hengdar upp. Þegar sýningin, Glæpir og góðverk, hefst kemur í ljós að við erum stödd á heimili þriggja systra. Systurnar eru tiltölulega nýfluttar, en þær fengu húsið í arf frá bróður sínum og eru að koma sér fyrir í upphafi verksins. Systurnar þrjár, Alda, Bára og Unnur, eru engar venjulegar systur. Þær...

Sjá meira

Í skugga Sveins sýnt í Gaflaraleikhúsinu

Gaflaraleikhúsið frumsýndi 4 febrúar leikritið Í skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson. Verkið er fyndinn, spennandi og rammíslenskur gamansöngleikur, fullur af sprelli og kostulegum persónum – fjörugt og nútímalegt verk sem byggir á rótgróinni hefð. Leikarar í sýningunni eru Karl Ágúst Úlfsson sem margir muna eftir úr Spaugstofunni, Góða Dátanum Svejk og Umhverfis jörðina á 80 dögum, Kristjana Skúladóttir leikkona og söngkona sem hefur t.a.m gert garðinn frægan í Krakka RÚV  og Eyvindur Karlsson, sem bæði lék í Góða dátanum Svejk og samdi tónlistina. Ágústa Skúladóttir er leikstjóri en hún hefur leikstýrt fjölda vinsælla leikverka, t.a.m. Ævintýrum Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu, Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu, Umhverfis jörðina á...

Sjá meira

Svarti kassinn til Litháen

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur tilnefnt sýningu Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, sem framlag okkar Íslendinga á leiklistarhátíð NEATA (norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins) í Litháen næsta sumar. Leiklistarhátíðir NEATA eru haldnar annað hvert ár, til skiptis í aðildarlöndunum sem eru norðurlöndin ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEATA á 20 ára afmæli í ár en það var stofnað í Noregi 1998. Svarti kassinn er frumsamið leikverk, sem var frumsýnt af Leikfélagi Kópavogs föstudaginn 28. apríl 2017 í Leikhúsinu við Funalind. Verkefnið er samsköpunarverkefni í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og var það í vinnslu með hléum frá því...

Sjá meira

Sálir Jónanna ganga aftur í Aratungu

Laugardaginn 3. febrúar frumsýndi Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu gamanleikritið Sálir Jónanna ganga aftur eftir þær Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Hjalti Gunnarsson og Íris Blandon fara með aðalhlutverkin en leikarar eru 10 talsins. Leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar og er þetta í 9 skiptið sem hann leikstýrir hjá Leikdeildinni. Æfingar hafa gengið mjög vel og mikil stemmning verið á æfingum. Mikið hlegið og er nokkuð víst að um fjörugan gamanleik er að ræða. Leikritið er harmþrungin, siðferðisleg þjóðfélagádeila. Grallaraleg leikgerð á þjóðsögunni alkunnu um kerlinguna og sálina hans Jóns hennar. Í þessari útgáfu eru...

Sjá meira

Engin lognmolla

Halaleikhópurinn: Maður í mislitum sokkum eftir  Arnmund S. Backman Leikstjórn: Þröstur Guðbjartsson Það er alltaf sérstök stemning og stíll yfir sýningum Halaleikhópsins sem ekki breytist þótt verkin sem tekin eru til sýningar séu mismunandi og leikstjórarnir ólíkir. Þessu veldur aðallega tvennt, það er sýningarsalurinn sem er allur á breiddina en aðallega er það þó leikhópurinn sjálfur þar sem fötlun og hjólastólar verða að styrkleika en ekki hömlun eins og sumir myndu kannski halda. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um leikritið sjálft. Það var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1998 og hefur verið sýnt hjá áhugaleikfélögum víða um land síðan....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur

Nýtt og áhugavert