Allar Fréttir

Fullkomið brúðkaup á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi er Örn Árnason og leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið segir frá ungu fólki sem er...

Vinnustofa í sagnalist

Halaleikhópurinn býður upp á vinnustofu í sagnalist nú á vordögum. Þetta er sjálfstætt framhald námskeiðs sem haldið var árið 2014. Þá var unnið með þjóðsögur og ævintýri en að þessu sinni verður viðfangsefnið persónulegar sögur. Leiðbeinandi verður sem áður,...

Mikill áhugi á hlutverkum í Bláa hnettinum

Í gær miðvikudaginn 6. apríl voru skráningar í prufur fyrir hlutverk í Bláa hnettinum. Gríðarlegur fjöldi barna mætti og munu næstu dagar fara í að hitta börnin og sjá hæfileika þeirra. Borgarleikhúsið leitar að 22 börnum, sem geta sungið,...

Stuttverkahátíð Leikfélags Ölfuss

Leikfélag Ölfuss efnir til stuttverkahátíðar laugardaginn 9. apríl næstkomandi. Sýnd verða nokkur af þeim tugum stuttverka sem orðið hafa til síðastliðna tvo vetur en félagar úr LÖ hafa hist reglulega til að skrifa leikverk. Dagskráin hefst klukkan 17:00 og sýnt...

VINNSLAN – Listamenn fylla öll rými Tjarnarbíós

Listahátíðin Vinnslan verður haldin laugardagskvöldið 9. apríl í Tjarnarbíói. Um 30 listamenn sýna verk í vinnslu og fylla rými Tjarnarbíós með öllum listformum. Listahópurinn Vinnslan heldur sína árlegu listahátíð á laugardaginn frá kl. 19:30 til 23 í Tjarnarbíói. Á þriðja...

Litli leikklúbburinn býður í leikhús

Þann 23. apríl frumsýnir Litli Leikklúbburinn leikritið „Rauðhettu“ eftir Snæbjörn Ragnarsson.  Þetta er fjörugt barnaleikrit með söngvum, en auk Rauðhettu, úlfins og ömmu koma Grísirnir 3, Hans og Gréta, nornin og pabbinn við sögu. Þetta er lokahnykkurinn á 50 ára...

Ræningjar undir Eyjafjöllum

Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner fjallar um hvernig samfélag getur haft áhrif á alla til góðs, líka ræningja. Allir vinna sín verk í ró og næði og standa saman þegar á reynir. Það þarf þorp til að ala upp barn...

Djúp spor frumsýnt í Tjarnarbíói

Fimmtudaginn 31. mars kl. 20:30 verður leikritið Djúp spor frumsýnt í Tjarnarbíói. Selma og Alex hafa ekki hist í fimm ár. Fyrir tilviljun hittast þau aftur og þurfa þá að gera upp drauga fortíðar, ákveða hvort þau séu tilbúin...

Kveðja á alþjóðlega leikhúsdaginn

Kveðja á alþjóðlega leikhúsdaginn

On behalf of the Nordic and Baltic countries, we wish you a wonderful World Theatre Day. The allocution is made by the Vicepresident of the Lithuanian Amateur Theatre Association dr. Danute Vaigauskaite: Lithuanian Theatre Lover about THEATRE ESSENCE THEATRE...

Með vífið í lúkunum, sýningar á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney við gríðarlega góðar undirtektir. Leikverkið er gamanleikur af bestu gerð og fjallar um leigubílstjóra sem heldur tvö heimili og tvær eiginkonur. Líkt og fyrirséð er...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert