Allar Fréttir

Piltur og stúlka á Höfn

Leikfélgar Hornafjarðar æfir um þessar mundir leikritið Piltur og stúlka. Leikstjóri er Stefán Sturla og hefur hann unnið nýja leikgerð sem byggir á bók Jóns Thoroddsen. 18 manna hópur leikara æfa nú á fullu og er áætluð frumsýning 18. mars....

Listin að lifa í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á...

Líf, dauði og lygar í Kópavogi

Sunnudaginn 29. jan. kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Kópavogs stutta leikdagskrá sem ber yfirheitið Líf, dauði og lygar. Dagskráin samanstendur af þremur leikþáttum, einum íslenskum og tveimur erlendum. Íslenski leikþátturinn er Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar. Erlendu...

Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum...

Australiana í Tjarnarbíói

Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar...

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638...

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að ráðast í vorverkefni félagsins sem verður farsinn „Sex í sveit“ eftir Marc Camoletti. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. febrúar og vinna í 6-8 vikur. Umsóknir og...

Leikfélag Reykjavíkur 120 ára

Leikfélag Reykjavíkur fagnar í dag 120 ára afmæli sínu en það var stofnað 11. janúar 1897.  Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins.  Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög...

Ævisaga Einhvers aftur á svið

Ævisaga Einhvers, sem hlotið hefur gríðarlega góðar undirtektir áhorfenda og einróma lof gagnrýnenda, fer aftur á svið í Tjarnarbíói. Leikhópurinn Kriðpleir segir sögur venjulegs fólks, þeirra sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. „Langflest erum við jú bara að...

Úti að aka – opinn samlestur

Fimmtudaginn 5. janúar kl 12.oo verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Úti að aka eftir Ray Cooney. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert