Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og er þetta í þriðja skipti sem hann vinnur með Leikfélagi Ölfuss. Stefnt er að frumsýningu í endaðan febrúar í Ráðhúsi Ölfuss.

Fylgist með framhaldinu á Facebook síðu leikfélagsins.