Allar Fréttir

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna 20.3. 2014

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna 20.3. 2014

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna er í dag. Markmiðið með deginum er að kynna börn fyrir leikhúsinu og vekja þá fullorðnu til umhugsunar um að gera gott leikhús fyrir börn. Yfirskrift dagsins er "Förum með börnin í leikhús svo þau sjái,...

Ferjan frumsýnd á föstudaginn

Ferjan frumsýnd á föstudaginn

Föstudaginn 21. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Ferjuna á Litla sviðinu, glænýtt íslenskt verk eftir einn ástsælasta höfund þjóðarinnar Kristínu Marju Baldursdóttur. Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman...

Nýjar og spennandi vörur hjá Bandalaginu

Nýjar og spennandi vörur hjá Bandalaginu

Vorum að taka upp sendingu frá hinu virta leikhúsförðunarmerki Kryolan í Þýskalandi. Mikið úrval af Supracolor kremfarða, ný og flott handhnýtt hökuskegg, ný tegund af vaxi í þremur stærðum, ný tegund af gerfiblóði, Artex tveggja þátta silikonefni fyrir þrívíddar...

Aladdín aftur á Brúðuloftinu

Aladdín aftur á Brúðuloftinu

Næstkomandi laugardag, 22. mars mætir Aladdín aftur galvaskur ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri furðufuglum á Brúðuloftið í Þjóðleikhúsinu til að skemmta fólki frá 5 ára upp í 105 ára. Hætta þurfti sýningum fyrir jól fyrir fullu húsi og...

Frábær kvöldskemmtun í Lyngbrekku

Frábær kvöldskemmtun í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söng- og gamanleikinn Stöngin inn í Lyngbrekku föstudaginn 14. mars sl. við gríðargóðar undirtektir áhorfenda sem fylltu salinn og skemmtu sér konunglega.Stöngin inn er bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson leikara. Stöngin inn var frumsýnd...

Pörupiltar á kafi í kynlífi

Pörupiltar á kafi í kynlífi

Sunnudaginn 23. mars hefja Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið almennar kvöldsýningar á Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú...

Aukasýningar á Stóru börnunum

Aukasýningar á Stóru börnunum

Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frumsýnt var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagnrýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Fjórum aukasýningum hefur verið bætt við, nánar tiltekið 20., 21., 22....

Alþjóðlegur leiklistarskóli í London

Alþjóðlegur leiklistarskóli í London

Breski leiklistarháskólinn Rose Bruford mun vera með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. apríl næst komandi. Nánari upplýsingar og skráning eru með tölvupósti: international@bruford.ac.uk eða í síma: + 44 20 8308 2638....

Horn á höfði í síðasta sinn

Horn á höfði í síðasta sinn

Leiksýningin Horn á höfði hefur nú verið sýnd um 80 sinnum frá árinu 2009 á fjórum stöðum. Upphaflega byrjaði ævintýrið í 120 fermetra bakherbergi pítsastaðarins Mamma Mía í Grindavík. Sama leikár vann sýningin Grímuverðlaun sem besta barnasýningin og samdi...

Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Hið vikulega

Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Hið vikulega

Næstkomandi laugardag, þann 15. mars, mun Leikfélag Hafnarfjarðar hrinda af stað vorverkefni sínu. Það ber hið virðulega heiti Hið Vikulega, þar sem æfð verða upp og sýnd nokkur stuttverk í hverri viku í fjórar vikur alls, sjö til tíu...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert