Vel heppnað námskeið á Sauðárkróki
Dagana 7. – 11. mars stóð Leikfélag Sauðárkróks fyrir leiklistarnámskeiði í húsnæði sínu Leikborg. Leiðbeinandi var Jakob S. Jónsson sem mun leikstýra Sæluvikuverkefni LS þetta árið, Svefnlausa brúðgumanum. Alls tóku 18 manns þátt í námskeiðinu, allir með einhverja leikreynslu en mismikla þó. Tíðindamaður heimsíðu leikfélagsins (www.skagafjordur.net/LS) leit við á námskeiðinu fyrsta kvöldið, spurði þátttakendur nokkurra spurninga og varð nokkurs vísari um út á hvað leiklistarnámskeið gengur. Það sem dró fólkið á námskeiðið virtist aðallega vera það að menn langaði að lyfta sér upp, kynnast sjálfum sér og sinni getu, teygja aðeins á þægindasviðinu, víkka sjóndeildarhringinn og nýta sér þetta...
Sjá meira


