Aukasýningar á Súldarskeri og Svikaranum
Nú er tveimur sýningum að ljúka í Tjarnarbíói. Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur verður sýnt 11. og 12. mars og Svikarinn í uppsetningu Lab loka verður með síðustu sýningar 13. og 17 mars. Súldarsker var frumsýnt um miðjan janúar og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan þá og hefur þurft að bæta við 8 aukasýningum til að anna eftirspurn. Sýning Lab Loka Svikarinn í Tjarnarbíó hefur hlotið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda og aðsókn verið eftir því, – yfirleitt uppselt. Súldarsker segir frá tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir...
Sjá meira


