Year: 2011

Brúðuleikhúshátíðin BIP í Borgarnesi

Helgina 31. mars – 3. apríl verður haldin fyrsta alþjóðlega brúðuleikhúshátíðin í Brúðuheimum; B I P (Borgarnes International Puppet Festival). Hátíðin er haldin í húsakynnum Brúðuheima í Englendingavíkinni, en hún mun einnig teygja anga sína víðs vegar um gamla bæinn í Borgarnesi og glæða hann lífi með fjölbreyttum dagskráratriðum. Í ár er lögð megináhersla á norrænt brúðuleikhús á hátíðinni. Heiðursgestur hátíðarinnar er sænski brúðuleikhúsfrömuðurinn Michael Meschke, stofnandi Marionetteatern í Stokkhólmi. Meschke er einn virtasti brúðulistamaður Norðurlanda og fagnar í ár 80 ára afmæli sínu. Í tilefni af komu Meschke til landsins verður opnuð yfirlitssýning í Mjólkursamlaginu með brúðum og...

Sjá meira

Sýningum lýkur á Góðverkin kalla!

Allra síðustu sýningar Halaleikhópsins á verkinu Góðverkin kalla! munu fara fram 19. og 20. mars næstkomandi. Uppselt er á fyrri sýninguna. Sýningin hefur hlotið mikið lof og mikið hlegið enda hefur verið nánast fullt út úr dyrum á hverri sýningu. Sýnt er í húsnæði Halaleikhópsins að Hátúni 12 og hefjast sýningar kl. 17:00. Miðapantanir eru í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is Miðasalan opnar 1 1/2 tíma fyrir hverja sýningu.Miðaverð er 1500 kr. og 1000 kr. fyrir börn 12 ára og yngri.Hópafsláttur fyrir 10 manns eða fleiri 1200 kr. miðinn. Greitt fyrirfram....

Sjá meira

Málþing um Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið og norska sendiráðið standa fyrir málþingi um Heddu Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn kl. 15. Málþingið er haldið í tengslum við sýningu leikhússins á verkinu. Frá því að verkið var fyrst sýnt árið 1891 hafa fjölmargar frægar sýningar verið á því víða um heim, og það er annað af mest leiknu leikritum skáldjöfursins Henriks Ibsens. Nú tekst Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri og samverkafólk hennar á við þetta víðfræga leikrit Ibsens í sýningu Þjóðleikhússins. Hedda Gabler er ein þekktasta kvenpersóna leikbókmenntanna. Hún hefur í gegnum tíðina vakið sterk viðbrögð hjá áhorfendum og um leið margvíslegar...

Sjá meira

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýja revíu

Föstudaginn 18. mars frumsýnir Leikfélag Keflavíkur revíuna Bærinn bræðir úr sér. Höfundar eru meðlimir Breiðbandsins ásamt leikfélagsdrengjunum Arnari Inga og Gustav Helga. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir og er þetta í þriðja sinn sem hún setur verk á svið með félaginu. Æfingar hafa staðið yfir síðan í janúar og er allt að smella saman. Í fyrra  ákvað Leikfélag Keflavíkur  að ráðast í skrif á revíu þar sem ansi mikið hefur gerst í sveitarfélaginu og því af nægu að taka. Haft var samband við meðlimi Breiðbandsins um að taka þátt í skrifum en þeir skrifuðu einnig revíuna sem sýnd var...

Sjá meira

Góði dátinn lofaður í hástert

Um þessar mundir standa yfir sýningar á leikritinu Góða Dátanum Svejk í Freyvangsleikhúsinu Eyjafjarðarsveit. Leikritið var frumsýnt þann 25. febrúar síðastliðinn og hefur verkið vakið lukku meðal áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda. Eftirfarandi eru nokkrar umsagnir um sýninguna. Ágúst Þór Árnason, Vikudagur á Akureyri: „Leikstjórinn, Þór Tulinius, nær að skapa heildstæða sýningu þar sem texti, leikmynd, búningar, leikhljóð, hraði og skiptingar eru eins og best verður á kosið.“ Sóley Björk Stefánsdóttir, kistan.is: „Eftir þessa sýningu sit ég með gleði í hjarta yfir að búa í nálægð góðs áhugaleikhúss.“ Þráinn Karlsson, leikari: „Þessi sýning var fagnaðarefni. Hún var kraftaverk af hendi...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert