Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroska og þróa aðferðir til að beisla sköpunarkraft sinn og beina honum í listrænan farveg. Áhersla er á sviðslistir í sem víðastri merkingu.
Umsóknarfrestur til að sækja um nám á haustönn 2014 er 17. september. Einungis er tekið við netumsóknum á http://www.leikfelag.is/is/leiklistarskoli/umsoknareydublad-lla
Skólagjöld fyrir haustönn eru kr. 25.000.-
Skólinn er fyrir börn í 3. -10. grunnskóla. Skipt verður í hópa eftir reynslu og aldri og er hver hópur einu sinni í viku, í 90 mín í senn. Kennt verður á mánudögum og þriðjudögum kl. 15:30, 17:00 og 18:30. Önnin telur 12 skipti allt í allt.
Í lok námskeiðanna verður kynning/sýning á þvi sem nemendur hafa verið að vinna að á önninni. Einnig verður foreldrum boðið að kíkja í tíma um miðbik annarinnar.
Markmið fyrir yngri hópa:
Í yngri hópum verður lögð áhersla á grunnþætti leiktúlkunar, að segja sögu, tengingu líkama og raddar auk þess að vinna með og útfæra hugmyndir. Að loknu námskeiðinu skal nemandinn hafa öðlast grunnþjálfun í framsetningu á leiknu efni, vera fær um að tjá sig fyrir framan áhorfendur og hafa grunn skilning á vinnu í hóp.
Kennslutími: mánudag og þriðjudaga 15:30 og 17:00 (hópafjöldi fer eftir þátttöku)
Markmið eldri hópa:
Í hópum eldri nemenda er áherslan lögð á að auka skilning og læsi á leikmáli ásamt áframhaldandi þjálfun í rými, skynjun, leiktúlkun og rödd. Að loknu námskeiðinu skal nemandinn hafa öðlast þjálfun og skilning á völdum aðferðum er lúta að sviðslistum, vera fær um að tjá sig fyrir framan áhorfendur og hafa góðan skilning á vinnu í hóp.
Á haustönn eldra árs er áherslan á senuvinnu. Auka skilning og læsi á leiktexta ásamt áframhaldandi þjálfun í rými, skynjun, leiktúlkun og rödd. Að loknu námskeiðinu skal nemandinn hafa öðlast þjálfun og skilning á völdum aðferðum er lúta að sviðslistum, vera fær um að tjá sig fyrir framan áhorfendur og hafa góðan skilning á vinnu í hóp.
Kennslutími: mánudaga og þriðjudaga kl. 18:30.
Kennt verður í RÝMINU og í SAMKOMUHÚSINU.