Frá árinu 2001 hafa menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er tengt saman með menningarsamningum um markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.
Í íslensku samfélagi hafa að undanförnu átt sér stað miklar breytingar. Það kallar á viðbrögð ekki síst á sviði menningar og því tímabært að meta reynsluna af menningarsamningunum og huga að nýrri sókn í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar. Af því tilefni boða menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k.
Á Markaðstorgi menningarinnar munu menningarráðin á landsbyggðinni kynna starfsemi sína og bjóða upp á nokkur atriði sem henni tengjast. Fjallað um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna? Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi á Austurlandi og Dr. Guðrún Helgadóttir prófessor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum í Hjaltadal verða frummælendur og þátttakendur í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum frá iðnaðar- og menntamálaráðuneyti.
Meðal margra góðra gesta sem flytja erindi á ráðstefnunni má nefna Jón Jónsson þjóðfræðing og ferðaþjónustubónda, á Kirkjubóli á Ströndum, Dögg Mósesdóttur kvikmyndagerðarkonu, Viðar Hreinsson bókmenntafræðing, Hjálmar Sveinsson heimspeking og þáttargerðarmann á Rás 1, Sigríði Sigurjónsdóttur prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóli Íslands, Þór Sigfússon hagfræðing og forstjóra, Elísabetu Indru Ragnarsdóttur þáttargerðarmann á Rás 1, Svanhildi Konráðsdóttur, formann Ferðamálaráðs og sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra hjá ReykjavíkurAkademíunni og Brynhildi Guðjónsdóttur leikkonu og leikskáld.
Allir þeir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi og ferðamálum á Íslandi eru hvattir til að mæta á ráðstefnuna enda verða þær umræður sem þar fara fram grundvöllur að frekara samstarfi ríkis og sveitarfélaga um menningu og menningartengda ferðaþjónustu.
Ráðstefnan verður sett klukkan 11,00 mánudaginn 11. og henni slitið klukkan 17.00 þriðjudaginn 12. maí. Ráðstefnugjald er 9000 kr. Innifalið er hádegisverður, kvöldverður (án drykkja), kaffiveitingar og kynnisferð.
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu. Hótel Stykkishólmur býður upp á sérstakt tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti. Gisting í eina nótt fyrir manninn kostar 5000 kr. í tveggja manna herbergi og 6000 kr. í eins manns herbergi.
Ráðstefnan verður sett klukkan 11.00 mánudaginn 11. og henni slitið klukkan 17.00 þriðjudaginn 12. maí.
DAGSKRÁ
Mánudag 11. maí
Kl. 12.00 Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna
Ávarp ráðherra
Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða
Kl. 12.40 Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning
Kl. 13.00 Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands
– Stutt hlé
Kl. 13.30 Elísabet Indra Ragnarsdóttir: Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira …
Kl. 13.50 Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur
Kl. 14.10 Jón Hrólfur Sigurjónsson: Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!
Kl. 14.30 Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu
– Stutt hlé
Kl. 15.00 Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason barinton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja. Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra
Kl. 15.15 Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra
Kl. 15.30 Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi
– Stutt hlé
Kl. 16.10 Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamála-ráðuneytum.
Kl. 17.15 Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð.
Kl. 19.45 Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu.
Kl. 21.00 Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari og Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða.
Þriðjudag 12. maí
Kl. 09.30 Svanhildur Konráðsdóttir: Menning – mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu
Kl. 09.50 Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings
Kl. 10.05 Stuttmyndafestivalið Stulli verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings
Kl. 10.15 Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir
Kl. 10.30 Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands
Kl. 10.45 Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands
– Stutt hlé
Kl. 11.20 Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða
Kl. 11.40 Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl. 13.00 Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga
Kl. 13.20 Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning
Kl. 13.40 Umræður
– Stutt hlé
Kl. 14.20 Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands
KL. 14.35 Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum
Kl. 15.00 Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni
Kl. 15.20 Ávarp ráðherra
Kl. 15.30 Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og um skráningu er að finna á www.ferdamalastofa.is.