Laugardagskvöldið 28. október verður Herra Kolbert eftir David Gieselmann frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Hér er á ferðinni margverðlaunað leikrit sem sýnt hefur verið um allan heim og vakið mikla athygli. Í verkinu tvinnast saman ómótstæðilegur húmor og hvöss ádeila.
Hver er herra Kolbert? Hver er með númer 26, sleppa chillíinu? Er Herra Kolbert í kistlinum á stofugólfinu? Steindauður? Hver var með hvítlauks bolognese með eggi? Ef Herra Kolbert er dauður hver drap hann þá? Og hvernig kemur pizzusendillinn inn í þetta allt saman?
Venjulegt matarboð hjá venjulegu fólki tekur óvænta stefnu og þegar kvöldið er liðið er allt breytt.
Herra Kolbert hefur farið víða frá því það var frumsýnt við frábærar viðtökur í Royal Court leikhúsinu í London árið 2000. Mörg framsæknustu leikhús Evrópu hafa sett verkið upp og hlotið lof gagnrýnenda og áhorfenda fyrir. Herra Kolbert hefur ekki látið staðar numið þar heldur lagt undir sig Ástralíu og Ameríku. Leikritið sameinar spennu og átök Hitchcocks, undarlegheit Pinters, fáránleika Ionescos og ómótstæðilegan húmor.
Herra Kolbert verður frumsýnt 28. október í Samkomuhúsinu á Akureyri. Höfundur er David Gieselmann en þýðingu annaðist Bjarni Jónsson. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir sýningunni, en hann leikstýrði rómaðri uppsetningu LA á Maríubjöllunni í fyrra. Sú sýning hlaut fjölda tilnefninga til Íslensku leiklistarverðlaunanna – Grímunnar. Leikmynd og búninga hannar Íris Eggertsdóttir og ljósahönnuður er sem fyrr hjá LA Björn Bergsteinn Guðmundsson. Tónlist og hljóðmynd semur Hallur Ingólfsson. Ragna Fossberg hannar gervi sýningarinnar. Leikarar eru Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Steinn Ingunnarson og Unnur Ösp Stefánsdóttir.