Upplestrakvöld eru orðin fastir liðir í Borgarleikhúsinu á aðventunni. Rithöfundar munu þetta árið lesa úr verkum sínum fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.00 og fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20.00.
Fimmtudagskvöldið 30. nóvember lesa höfundarnir: Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon úr verkum sínum. Fimmtudagskvöldið 7. desember er síðan komið að Árna Björnssyni, Ingunni Snædal, Óskari Árna Óskarssyni, Stefáni Mána, Steinari Braga og Þórunni Erlu Valdimarsdóttur að lesa úr sínum verkum.
Einnig verður á boðstólnum léttur jóladjass og kaffihúsastemning.
Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.