Alþjóða leikhúsdagurinn 27. mars 2003 – Íslenskt ávarp
Frá því Ísland gerðist aðili að ITI hefur íslenskur leikhúslistamaður verið fenginn ár hvert til að semja ávarp í tilefni dagsins og hefur sú hefð skapast að ávarpið birtist í dagblöðum, er flutt af höfundi í útvarpi og af einhverju leiksviði þennan dag og hafa aðrir leikhúslistamenn stigið fram á svið fyrir sýningar í leikhúsum og flutt ávarpið fyrir hans hönd hvar sem leikið er þennan dag. Í ár er það Þráinn Karlsson, leikari á Akureyri sem hefur samið ávarp Alþjóða leikhúsdagsins fyrir Leiklistarsamband Íslands. Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 27. mars 2003 Ávarpið skrifar Þráinn Karlsson leikari á Akureyri. Góðir leikhúsgestir. Á þessum degi 27. mars ávarpa leikhúslistamenn leikhúsgesti um allan heim. Það var með tregablandinni gleði að ég tók að mér að setja saman ávarpið að þessu sinni. Eins og nú er kunnugt hefur öllum starfsmönnum eins atvinnuleikhúss landsins, Leikfélags Akureyrar, verið sagt upp störfum vegna fjárhagsvanda. Við slík tímamót veltir maður fyrir sér spurningum sem varða okkur listamennina og áhorfendur, af meiri alvöru en þegar allt leikur í lyndi. Spurningum eins og; Hvers virði er leiklist samfélaginu? Hver er hagnaðurinn? Ég var 7 ára gamall þegar ég fór fyrst í leikhús með foreldrum mínum að sjá sjónleikinn Skálholt eftir Guðmund Kamban, harmsögu frá 17. öld. Ég ríghélt í móður mína, skalf eins og asparlauf í vindi. Var ef til vill rangt að taka snáðann með á þessa leiksýningu? Ég held...
Sjá meira


