Author: lensherra

Æfingar hefjast á Fiskum á þurru landi

Leikfélag Hólmavíkur hefur hafið æfingar á leikritinu Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen. Leikstjóri er Kolbrún Erna Pétursdóttir. Fjórir leikarar eru í sýningunni, tveir karlmenn og tvær konur.  Fyrsti samlestur var 1. mars sl. og frumsýning áætluð eftir sex vikur eða á Skírdag 13. apríl.  Eins og alltaf hjá leikfélaginu verða nokkrar sýningar á Hólmavík en síðan  verður farið af stað og sýnt á Drangsnesi, Árnesi og fleiri stöðum. Tvö ár eru síðan Leikfélag Hólmavíkur setti síðast upp...

Sjá meira

Forsala hafin á Litlu hryllingsbúðina

Leikfélag Akureyrar hefur hafið er forsölu á söngleikinn Litla hryllingsbúðin sem frumsýndur verður 24. mars n.k. Boðið er upp á sérstakt tilboð á fyrstu 1000 miðunum sem seljast í forsölu, því þá fylgir geisladiskurinn með tónlistinni úr sýningunni með í kaupbæti.   Innan skamms kemur út geisladiskur með tónlistinni úr verkinu. Diskurinn hefur að geyma 20 lög og er fyrsta lagið nú þegar farið í spilun á útvarpsstöðvum. Það er lagið Gemmér í flutningi Andreu Gylfadóttur og Guðjóns Davíðs Karlssonar.   Litla hryllingsbúðin er sígildur rokksöngleikur sem hefur farið sigurför um heiminn síðan hann var frumsýndur fyrir 25 árum. Enda er sagan krassandi, persónurnar heillandi, tónlistin grípandi og húmorinn allsráðandi. Erkilúðinn Baldur eyðir fábrotnum dögunum í blómabúðinni hans Markúsar. Hann lætur sig dreyma um ástir Auðar sem er viðskiptavinur í búðinni. Dag einn, rétt fyrir sólsetur uppgötvar Baldur undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heittelskuðu. Áður en langt um líður kemur í ljós að plantan hefur undarlega eiginleika og gríðalega matarlyst. Og hún vex og vex. Plantan vekur óskipta athygli og viðskiptin blómstra sem aldrei fyrr. Inn í söguna blandast svo kærasti Auðar, tannlæknir með kvalalosta, og atburðarrásin tekur óvænta stefnu…  Höfundar: Howard Ashman og Alan Menken  Byggt á kvikmynd Roger Corman og handriti Charles Griffith  Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson  Leikmynd og búningar: Halla Gunnarsdóttir  Listræn ráðgjöf: Snorri Freyr Hilmarsson  Tónlistarstjórn: Kristján Edelstein  Lýsing:...

Sjá meira

Æfingar hafnar á Vælukjóa

Leikfélag Reyðarfjarðar æfir nú í samvinnu við Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað söngleikinn Vælukjói (Cry baby). Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Æfingar hófust upp úr miðjum janúar og frumsýning verður 31 mars. Þetta er samstarfsverkefni er byggt upp og í kringum Listahátíðina Sprotann sem Verkmenntaskólinn stendur fyrir í sömu viku og frumsýnt verður. Leikarar í verkinu koma aðallega úr röðum nemenda skólans en þó tekur skólastjóri og einn kennari þátt ásamt formanni Leikfélagi Reyðarfjarðar sem og nokkrum öðrum úr félaginu. Söngleikurinn verður sýndur í Egilsbúð og væntanlega í Félagslundi á Reyðarfirði eftir páska. Þetta verður fyrsta leiksýning Leikfélags Reyðarfjarðar eftir breytingar í Félagslundi en verið er að breyta húsinu úr félagsheimili í ráðstefnusal, bíó og leikhús með upphækkuðum sætum. Laugardaginn 26. febrúar sl. stóðu Guðmundur Y. Hraunfjörð, formaður Leikfélags Reyðarfjarðar og Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi frá Menningarráði Austurlands fyrir fundi með áhugafólki um leiklist á Austurlandi, frá Höfn og til Vopnafjarðar og var mæting góð. Umræðuefni fundarins var leiklist og þær aðstæður sem hún býr við á Austurlandi, t.d. erfiðleikar við að fá fólk til að starfa í leikfélögunum sem og aðstöðuleysi. Markmiðið var líka að koma á betri samvinnu milli félaga og stuðla að því að unnið yrði sameiginlega að stefnumörkun í þeim byggðakjörnum sem leiklist er stunduð, t.d. til að sýna fram á forvarnagildi leiklistarstarfsins og til að auka skilning almennings og pólitíkusa á nauðsyn þess að halda uppi góðri...

Sjá meira

Pétur Gautur frumsýndur í Kassanum

Laugardaginn 4. mars verður Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen frumsýndur í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri er Baltasar Kormákur en með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur er vígslusýning Kassans, sem er nýtt svið í Þjóðleikhúsinu. Pétur Gautur er eitt af meistarverkum Henriks Ibsens, snilldarlegur ljóðleikur sem aflaði skáldinu heimsfrægðar. Verkið kom fyrst út á bók árið 1867 en tæpum áratug síðar var það frumflutt og hefur reglulega verið sett upp í frægum uppsetningum í helstu leikhúsum heims síðan þá. Hin margbrotna titilpersóna verksins og knýjandi spurningar um það sem skiptir máli í lífinu og kjarna mannsins hafa heltekið jafnt leikhúslistafólk sem áhorfendur í gegnum tíðina. Mannlegt innsæi höfundarins nýtur sín hér til fulls og ímyndunarafl og hugmyndaauðgi hans fara á óviðjafnanlegt flug, í verki sem er leiftrandi af húmor. Í sýningu Þjóðleikhússins nú verður sjónum beint að Pétri Gaut í nútímanum. Leikstjóri sýningar Þjóðleikhússins er Baltasar Kormákur sem er áhorfendum að góðu kunnur sem leikari og leikstjóri, bæði í kvikmyndum og leikhúsi. Frumlegar og myndrænar leiksýningar hans, jafnt á klassískum verkum á borð við Hamlet og Draum á Jónsmessunótt, sem og nýrri verkum, hafa vakið mikla athygli. Nýlegasta uppsetning hans í Þjóðleikhúsinu, Þetta er allt að koma, hlaut Grímuna-Íslensku leiklistarverðlaunin 2003 sem besta leiksýning ársins. Gretar Reynisson, sem gerir leikmynd sýningarinnar á Pétri Gaut, hlaut jafnframt Grímuna fyrir Þetta er allt að koma. Á þessu ári er hundrað ára ártíð...

Sjá meira

Virkjunin eftir Elfriede Jelinek í Þjóðleikhúsinu

Frumsýning á Virkjuninni eftir Nóbelsverðlaunahafann Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjánsdóttur verður á Stóra sviði Þjóðleikhússins þann 3. mars nk. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Náttúran, takmarkalaus trú á tækni og framfarir, hreyfanlegt vinnuafl og tungumálið eru meðal viðfangsefna Nóbelsverðlaunahafans Elfriede Jelinek í þessu leikverki, þar sem sem afbygging leikhússins og aðferða þess er jafnframt í brennidepli. Á sinn kaldhæðna hátt ræðst Jelinek að goðsögnum og afhjúpar þær, eða eins og hún segir sjálf: „Konan er dæmd til þess að segja sannleikann en ekki lýsa hinni fögru ímynd.“ Elfriede Jelinek er fædd í Austurríki 1946 og hlaut menntun á sviði tónlistar. Hún  hefur skrifað fjölda verka fyrir leiksvið, en einnig sent frá sér ljóð og prósaverk.  Meðal frægustu verka hennar eru skáldsögurnar Losti og Píanókennarinn, en gerð var samnefnd kvikmynd eftir þeirri síðarnefndu sem sýnd var hér á landi. Tvö leikrit eftir Jelinek hafa verið flutt í íslensku leikhúsi, Klara S. var sett upp í Nemendaleikhúsinu og Útvarpsleikhúsið flutti nýverið Hvað gerðist eftir að Nóra yfirgaf eiginmanninn. Á síðari árum hefur Jelinek nánast útrýmt hefðbundinni atburðarás í leikritum sínum og eins leikpersónum. Leikrit hennar þykja því einstök áskorun fyrir leikhóp og leikstjóra í uppsetningu. Jelinek hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2004. Leikendur eru Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Björgvin Franz Gíslason, Gísli Pétur Hinriksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, María Pálsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson, Páll S....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert