Author: lensherra

Þuríður og Kambsránið frumsýnt

Leikfélag Selfoss frumsýnir þann 10. mars í Leikhúsinu við Sigtún, leikritið Þuríði og Kambsránið, nýtt verk eftir formann félagsins Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Verkið fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um eitt þekktasta sakamál 19. aldarinnar, Kambsránið. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson. Leikritið segir frá hinu fræga Kambsráni í Flóa árið 1827 og hvernig Þuríður formaður Einarsdóttir átti sinn þátt í rannsókn málsins. Ránið að Kambi var eitt umfangsmesta sakamál 19. aldar á Íslandi og þáttur Þuríðar formanns á Stokkseyri í lausn málsins nokkuð einstakur auk þess sem sakborningarnir tengdust fjölmörgum Sunnlendingum ættarböndum og gera auðvitað enn. Og eins og margir vita þá var hún Þuríður þessi mikil baráttukona í hörðum karlaheimi. Sigurgeir Hilmar hefir nú samið leikrit sem byggt er að mestu á bók Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi um málið. Jón Stefán Kristjánsson leikstjóri og leikhópurinn hafa svo þróað verkið enn frekar. Með hlutverk Þuríðar fer Hilda Pálmadóttir en Rúnar Hjálmarsson leikur Sigurð Gottvinsson. Ekkert hefir verið til sparað til að gera þessa sýningu sem best úr garði og er það því von leikfélaga á Selfossi að Sunnlendingar og aðrir flykkist í leikhúsið til að sjá þetta leikrit um einstakan kvenskörung og afdrifaríkan glæp sem enn kitlar ímyndunarafl fólks á vorum tímum. Látið Þuríði og Kambsránið ekki framhjá ykkur fara. Sýningin hefst kl....

Sjá meira

Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsið

Nú hefur verið gengið frá samningum um sýningar á hinum geysivinsæla gamanleik, Fullkomnu brúðkaupi, í Reykjavík. Sýningarnar hefjast í lok apríl og verða í Borgarleikhúsinu. Miðasala hefst í miðasölu Borgarleikhússins nú á föstudag, 10. mars. Fullkomið brúðkaup hefur slegið öll met hjá LA og er aðsóknarmesta sýning í sögu leikhússins. Sýningin hætti fyrir fullu húsi á Akureyri nú í febrúar til að rýma til fyrir næstu frumsýningu leikhússins, Litlu hryllingsbúðinni.   Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup var frumsýnt hjá LA þann 20. október síðastliðinn. Sýningin sló þegar í stað í gegn og fullt var á allar sýningar verksins og fjölda aukasýninga bætt við. Þrátt fyrir að sýningin hafi enn verið sýnd fyrir fullu húsi var ákveðið að standa við það að sýningum lyki 18. febrúar enda ljóst að ella hefði þurft að fresta frumsýningu á Litlu hryllingsbúðinni fram á haust. Fullkomið brúðkaup er aðsóknarmesta sýning LA frá upphafi.   Starfsfólk leikhússins hefur orðið fengið fjölda fyrirspurna um sýningar í Reykjavík. Til að mæta fjölda áskorana hefur verið ákveðið að hefja sýningar á Fullkomnu brúðkaupi í Reykjavík í vor.  Þrír aðilar standa að sýningarhaldinu í Reykjavík í samstarfi við LA, það eru Borgarleikhúsið, Á þakinu og 3 Sagas.   Fyrsta sýningin verður 30. apríl en næstu sýningar þar á eftir eru: 2., 3, 7, 8 og 9 maí. Athugið að sýningar verða einungis í maí og júní og því rétt að hvetja...

Sjá meira

Ljóðs manns æði

Fræðsludeild Þjóðleikhússins og fjórir stuðningsmenn ljóðsins hafa tekið höndum saman um að halda nokkrar ljóðaskemmtanir á þriðjudagskvöldum í Leikhúskjallaranum næstu vikurnar. Nokkur umræða hefur farið fram að undanförnu þar sem bókmenntamenn og ljóðaunnendur hafa harmað að ljóðið hafi orðið hornreka í þeirri umfjöllun og athygli sem bókmenntir fá á Íslandi. Til að freista þess að snúa þessari þróun að einhverju leyti við mun fræðsludeild Þjóðleikhússins, í samvinnu við þau Eystein Þorvaldsson, Ástráð Eysteinsson, Sigurbjörgu Þrastardóttur og Hjalta Snæ Ægisson, standa fyrir þematengdum ljóðaskemmtunum í Leikhúskjallaranum undir yfirskriftinni Ljóðs manns æði. Umsjón hefur Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri og deildarstjóri fræðsludeildar. Fyrsta ljóðaskemmtunin verður 14.mars nk. en þá verður fjallað um Útrás í ljóðum eða yrkingar um útrásina, frá miðöldum til okkar daga, auk þess sem komið verður inn á íslenska landkönnun og landnám erlendis. Hvernig er ljóðagull sótt í greipar útlendinga? 28. mars er komið að Ljóðinu í líkamlegri nálægð – líkama, útliti, nautnum og sársauka í ljóðum. 11. apríl er yfirskriftin Mér brennur í muna. Minningamyndir. Eru ljóð minnisvélar? Hvað varðveitir ljóðið og hvernig? Hvað kveikir minningar? Hver eru tengsl mælenda, minninga og ákveðinna staða? Sótt og dauði íslenskunnar er heiti ljóðaskemmtunar 25. apríl, en þá verður rætt um um margboðað andlát móðurmálsins. Verður ljóðlistin lífgjafi þess? Hvernig tekur ljóðið á tungumálinu? Flytjendur verða leikarar, höfundar og fleiri. Leitast verður við að skapa ljúfa stemmingu og gestir geta notið veitinga...

Sjá meira

Sister Act í Garðabæ

Leikfélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ kynnir söngleikinn Sister Act, eftir samnefndri kvikmynd (Sister Act II) sem naut mikilla vinsælda snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Verkið fjallar um skemmtikraftinn Delores van Cartier sem í dulbúningi systur Maríu Clarence kemur vinkonum sínum, nunnunum í skóla heilags Francis, til bjargar með því að gerast tónlistarkennari. Nemendur hennar eru vægast sagt óagaðir en með kænsku sinni tekst Delores að gera úr þeim prýðiskór. Leikstjóri er Örn Árnason, danshöfundur Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, söngstýra Gróa Hreinsdóttir, Guðni Kolbeinsson sér um þýðingu á söngtextum, ljósahönnuður Guðmundur Orri Sævarsson og Kjartan Valdimarsson sér um hljóðmynd.   Aðalleikarar eru; Emilía Björg Kofoed-Hansen sem leikur Deloris,  Aðalbjörg Ósk Gunnarsdóttir, Elísa Hildur Þórðardóttir og Hrefna Þórarinsdóttir leika nunnurnar þrjár, Hrefna Bóel Sigurðardóttir leikur Ritu og Daníel Þór Bjarnason leikur Frankey.   Verkið var frumsýnt þann 2. mars síðastliðinn og næstu sýningar eru eftirfarandi;   miðvikudaginn 8.mars sunnudaginn 12. mars miðvikudaginn 15. mars fimmtudaginn 16. mars sunnudaginn 19. mars þriðjudaginn 21. mars fimmtudaginn 23. mars Allar sýningar hefjast kl. 20.00 og sýnt er í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.   Miðapantanir eru í síma 5201600 og er miðasalan opin milli 8-19 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Miðaverð er 1700 krónur og hópar fá miðann á sérstöku...

Sjá meira

Nafnlaust en „ljótt“ fullorðinsverk að fæðast

í Hjáleigunni í Kópavogi svitnar þessa dagana hópur leikara ásamt leiðbeinendum sínum Oddi Bjarna Þorkelssyni leikstjóra og Margrétar Sverrisdóttur leikkonu. Unnið er að sýningu sem vonandi verður á fjöl komin í lok mars og eru efnistök blóðugt háð og óhuggulegt grín í garð taumlausrar útlitsdýrkunar. Samsæriskenningar spretta og andspyrnuhreyfingar verða til og allt kristallast það í byggingu sem er ekkert mannlegt óviðkomandi en er kannski ekkert sérlega mannleg heldur…. Hópnum leggur svo lið og línur Guðjón Þorsteinn Pálmarsson fyrrum meðlimur og leikstjóri LK. Áætlað er að frumsýna um mánaðarmótin. Auk þessa verks er leikfélagið með unglinganámskeiðið í gangi...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert