Author: lensherra

Nunnulíf í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir laugardaginn 18. mars leikritið Nunnulíf sem byggt er á kvikmyndinni Sister Act. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir, kórstjóri er Helga Jónsdóttir. Sýnt er í Bæjarleikhúsinu. Sister Act hefur aldrei verið sett upp á leiksviði og var undirbúningsvinnan því þó nokkur.  Ásamt leikstjórastöðu tók Laufey Brá að sér handritsgerð og galdraði hún fram handrit með guðs hjálp á ótrúlega stuttum tíma. Útkoman er Nunnulíf, stórskemmtilegt leikrit sem fléttar saman lífi reglusystra og hinu harða lífi undirheimanna. Leikritið fjallar í stuttu máli um söngkonu á næturklúbbi, Díönnu Díor, sem verður vitni að hræðilegum glæp.  Hún leitar aðstoðar lögreglu sem ákveður að fela hana í klaustri á meðan rannsókn á málinu fer fram.  Mikil togstreita á sér stað hjá söngkonunni og lífið í klaustrinu tekur óvænta stefnu.   Leikfélag Vestmannaeyja og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum standa saman að þessari uppsetningu en svona samstarf hefur verið ríkjandi undanfarin ár.  Stór hluti leikara eru nemendur í skólanum og er þessi vinna metin til eininga. Æfingar hafa staðið yfir í um 6 vikur og er Helga Jónsdóttir kórstjóri hópsins. Sýningar fara fram í Bæjarleikhúsinu. Frumsýning laugardaginn 18. mars kl. 20:00 2. sýning föstudaginn 24. mars kl. 20:30 3. sýning laugardaginn 25. mars kl. 20:00 Miðasala í síma...

Sjá meira

Frumsýning í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur í samvinnu við Vox Arena, leikfélag fjölbrautaskóla Suðurnesja, vinna nú saman að nýju verkefni.  Verkefnið, sem hlotið hefur nafnið: "KEFLAVÍK, ÍSLAND, ALHEIMURINN eða MAMMA ÞÍN" verður frumsýnt í Frumleikhúsinu föstudaginn 17. mars, kl 20:00.  Leikritið er unnið á all sérstakan hátt en það er leikhópurinn sjálfur sem býr til verkið.  Að sögn Alexöndru, formanns Vox Arena, skoðar leikritið lífið í Keflavík, á Suðurnesjum og lífið almennt, á ansi sérstæðan hátt. Kjarni efnisins er unnin upp úr viðtölum við fólk, bæði af Suðurnesjum og annars staðar frá en hópurinn tók sér leyfi til að snúa út úr öllum upplýsingum sem það hafði og jafnvel snúa staðreyndunum á hvolf ef svo bar undir. Tónlistin í verkinu er einnig öll frumsamin og umræður um útgáfu á geisladiski með lögum úr verkinu standa nú yfir. Frumsýning er á föstudaginn 17.mars kl. 20 og 2. sýning sunnudaginn 19. mars kl. 20. Upplýsingar um sýningartíma og miðapantanir eru í síma 421-2540. Einnig er hægt að fylgjast með á vef leikfélagsins...

Sjá meira

Kláus frumsýnir Rítu í Iðnó

Sunnudaginn 19. mars mun leikhópurinn Kláus frumsýna gamanleikinn Ríta eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson. Flestir þekkja söguna af Rítu, en hún fjallar í stuttu máli um unga konu sem er orðin leið á tilbreytingarlausri tilveru sinni og ákveður að athuga hvort ekki megi fá meira úr lífinu en vinnu og kvöld á pöbbnum með manninum. Hún skráir sig á bókmenntakúrs hjá langdrukknum og lífsleiðum prófessor og hefur það ófyrirséðar afleiðingar… Fimmtudagskvöldið 16. mars verður forsýning þar sem miðaverð er aðeins 1.000 kr. Um hönnun og leikmynd verksins sér Jóhannes Dagsson. Fyrstu sýningar verða sem hér segir; Fimmtudagur 16. mars – forsýning kr. 1000 Sunnudagur 19. mars – frumsýning Fimmtudagur 23. mars – 2. sýning Sunnudagur 26. mars – 3. sýning Allar sýningar hefjast klukkan 20:00 og miðverð er krónur 2500. Miðapantanir í síma 5629700 og við innganginn. Einnig á...

Sjá meira

Kardemommubærinn fyllir Freyvangsleikhúsið

Freyvangsleikhúsið frumsýndi Kardimommubæinn í Freyvangi þann 25 febrúar sl. fyrir fullu húsi og Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta; svona eins og til að vera með í tímalausu, sólríku umhverfi Kardimommubæjarins. Sesselja Traustadóttir var á staðnum. Leikstjórinn, Sunna Borg, velur sígilda leið að Kardimommubænum sem flestir kannast líklega best við af áralangri hlustun á útgáfu Þjóðleikhússins á verkinu. Sunna Borg opnar okkur bæinn með markaðstorg fyrir miðju sviðinu. Þar er bakarinn, pylsugerðarmaðurinn, hús Soffíu frænku sýnileg og dýrasalinn heldur til í ósýnilegu bakhúsi. Þarna er sporvagninn á sínu spori og bæjarvitringurinn Tóbías heldur til í turninum og segir til um veðrið....

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2006

Boðið er upp á námskeið fyrir leikstjóra og leikara að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 10.-18. júní og fyrir förðunarfólk að Laugavegi 96 helgarnar 13.-15. og 27.-29. október. Kennarar verða Sigrún Valbergsdóttir, Ágústa Skúladóttir, Steinunn Knútsdóttir og Gréta Boða. Skráning í skólann hefst þann 15. mars.  Umsóknum er hægt að skila á netfangið info@leiklist.is og leggja staðfestingargjaldið inn á 1150-26-5463, kt. 440169-0239.  Takið eftirfarandi atriði fram við skráningu: Nafn Númer námskeiðs Kennitala Heimilisfang Heima- vinnu- og GSM símanúmer Netfang Skráningu á námskeiðin að Húsabakka lýkur 10. maí. ATH! Hægt að er að hlaða bæklingnum niður sem PDF-skrá hér Námskeið nr. 1 Framhaldsnámskeið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert