Leikskáldið Edward Bond kemur til Íslands
Breska leikskáldið Edward Bond er gestur Félags leikskálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (Masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 29. apríl kl. 10-16. Allir áhugamenn um leikhús og leikritun eru velkomnir á þennan einstaka viðburð. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og vinna með leikurum í atriðum úr tveimur leikrita sinna til að skýra hugmyndirnar sem að baki liggja. Fyrirlesturinn og sýnikennslan fer fram á ensku. Edward Bond telst hiklaust í hópi merkustu leikskálda síðari hluta 20. aldarinnar, hann á að baki glæsilegan feril sem hófst með frumsýningu á einu umdeildasta leikriti síðari tíma í bresku leikhúsi, þegar Royal Court leikhúsið frumsýndi Saved (Hjálp) árið 1965. Verkið var bannað en sýningum var engu að síður haldið áfram og í kjölfarið var hin konunglega breska ritskoðun lögð niður. Af verkum hans síðar má nefna The Sea, Bingo, The Fool, The Woman, The Human Cannon, Derek, Restoration, The War Plays, Jackets, Crime of The 21st Century, Ollie´s Prison, Coffee o. fl. Öll helstu leikhús beggja vegna Atlantshafsins hafa sviðsett leikrit hans, þ.á m. The National Theatre London, The Royal Shakespeare Company, The Royal Court Theatre, Off Broadway leikhús í New York, Berliner Ensamble, Theatre National Paris o.fl. o. fl. Hann hefur sjálfur verið mikilvirkur leikstjóri eigin verka og ferðast víða um heim með fyrirlestra og sýnikennslu. Eftir Bond liggja nær 30 leikrit, auk kvikmyndahandrita og sjónvarpsleikrita,...
Sjá meira


