Halaleikhópurinn frumsýnir Pókók
Laugardaginn 11. mars mun Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra, frumsýna leikritið Pókók, fyrsta leikverk Jökuls Jakobssonar. Þegar verkið var skrifað vakti það vonir um að mikið leikskáld væri í fæðingu, sem og varð raunin. Jökull er eitt besta leikskáld sem við höfum átt. Verk hans eru stórbrotin umfjöllun um samtímann, sálarkima mannskepnunnar og á stundum hárhvöss ádeila á íslensku þjóðarsálina. Með hverju verki magnaðist innsæið og verkfæri leikhússins léku í höndum hans. Pókók er gamanleikur sem fjallar um mann sem er ný sloppinn af Litla hrauni. Hann ætlar að setja á markað og græða stórkostlega á sælgæti, sem vinur hans og samfangi fann upp. En ekki er auðvelt að fylgja hinum gullna vegi til ríkidóms og ekki er sælgætið eins vænt og talið var í fyrstu. Inn í leikritið fléttast blekkingar, svik og brögð. Fegurðardrottningar og óprúttnir þjófar. Leikritið er í 4 þáttum og er tímalaust. Það var samtímasaga þegar það var sett upp fyrst en gæti einnig gerst nú tæpum 50 árum seinna. Frumsýnt verður laugardaginn 11. mars, klukkan 20:00. Sýningar verða í okkar litla og notalega leikhúsi að Hátúni 12 og vonandi verða þær sem flestar. Nánari upplýsingar á halaleikhopurinn.is og í síma 552-9188. Meira um Halaleikhópinn: Segja má að hópurinn í allri sinni breidd sé birtingarform þess samfélags sem við viljum sjá í „besta heimi allra heima“. Heildarhugmynd leikrits getur breyst ef einhver...
Sjá meira