Author: lensherra

Örleikritasamkeppni framhaldsskólanema

Mánudagskvöldið 27. mars, á alþjóðlega leikhúsdaginn, verða úrslit í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna kynnt. Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir samkeppninni. Alls bárust á þriðja tug handrita hvaðanæva að af landinu. Fimm leikrit voru valin til flutnings í Kassanum, nýju leiksviði Þjóðleikhússins. Flytjendur eru nemendur í þriðja bekk leiklistardeildar LHÍ en leikstjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. Dómnefnd, sem skipuð er Þórhalli Sigurðssyni, leikstjóra og deildarstjóra fræðsludeildar, Ragnheiði Skúladóttur, deildarforseta leiklistardeildar LHÍ og Jóhannesi Helgasyni frá Spron, mun velja vinningshafa úr þessum verkum. Vegleg verðlaun eru í boði. Sigurvegarinn hlýtur 50 þúsund krónur, önnur verðlaun eru 30 þúsund krónur og þriðju verðlaun eru 20 þúsund krónur. Auk þess fá verðlaunahafar gjafakort í Þjóðleikhúsið. Þetta er í þriðja sinn sem fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild LHÍ standa fyrir örleikritasamkeppni meðal framhaldsskólanema. Bjargföst trú á uppeldis- og menningarlegt gildi leiklistar býr að baki stofnunar fræðsludeildar við Þjóðleikhúsið. Deildinni er ætlað að efla samskipti leikhússins við skólana í landinu, m.a. með námskeiðahaldi fyrir kennara, útgáfu á námsefni og með samstarfsverkefnum eins og örleikritasamkeppninni. Styrktaraðili örleikritasamkeppninnar er...

Sjá meira

Ávarp á alþjóða leikhúsdaginn 27. mars 2006

Segjum svo að manneskja standi upp í fjölmenni og heimti athygli viðstaddra þá er það ekki endilega leiklistarviðburður. En ef manneskjan fer upp á kassa er það í áttina, gæti þó verið framboðsræða eða predikun, jafnvel kynning á nýrri tannkremstegund. Ef manneskjan talar mjög hátt og tilgerðarlega, syngur og dansar eða hreyfir sig óvenjulega, klæðist furðulegum fötum eða bara alls engum fötum, þá er þetta örugglega leiklist. Sérstaklega ef hún er alsber. Ef manneskjan í þokkabót segir safaríkar lygasögur, sem fanga athyglina, þá er þetta pottþétt leikari.  Þó aðeins ef allir áhorfendur samþykkja lygasöguna sem eitthvað betra og hafið yfir sannleikann um stundarsakir. Leikarinn er mjög góður ef áhorfendur gleyma því að þeir þurfa að pissa í svona einn og hálfan klukkutíma.  Hugmyndaflug, innsæi og sköpunargáfur leikarann kallar fram nákvæmlega þessa sömu eiginleika í sérhverjum áhorfenda og úr verður það sem kallast leiklist.  Þetta samspil er kjarninn. Til að auka áhrifamátt hans og fjölbreytni hafa tveir og svo fleiri leikarar tekið sig saman og þá hefur þurft að stækka kassann, jafnvel smíða upphækkaðan pall. Síðan hengja upp tjöld til að fela ljótan bakgrunn, reisa  þak út af rigningu, tengja ljóskastara til að vinna á myrkrinu en til að fara hratt yfir þróunarsöguna þá höfum við nú það sem við nefnum leikhús. Þar vinnur gifulegur fjöldi fólks að því að spinna og vefa dýrindis klæði úr engu, líkt og vefararnir...

Sjá meira

Gauragangur á Höfn

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagana, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er sérlega uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og tónlistarstjórn annast Jóhann Morávek en hljómsveitin Ný dönsk samdi tónlistina.  Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagan, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður...

Sjá meira

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Hodja frá Pjort

Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort sem byggt er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en leikgerðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Ingvar Bjarnason. Hodja er ungur strákur frá smábænum Pjort í Búlgóslavíu. Hann dreymir um að ferðast og skoða heiminn en gengur illa að láta þann draum sinn rætast þrátt fyrir einlægan vilja. Einn daginn kynnist hann fjörgömlum teppavefara sem lánar honum fljúgandi töfrateppi. Hodja flýgur á því af stað í langþráð ferðalag til fjarlægra landa og lendir í fjölmörgum ævintýrum, hittir meðal annarra skúrkinn Rottuna og spikfeitan soldán sem hefur aðeins tvö áhugamál, að borða og höggva af fólki höfuðið. Hönnun leikmyndar er í höndum Finnboga Erlendssonar og Ingvars Bjarnasonar.  Dýrleif Jónsdóttir sá um hönnun búninga og gerfa og leikmuni. Ljósahönnuður er Kjartan Þórisson og tónlistarstjóri er Snæbjörn Ragnarsson. Leikritið er sýnt í nýjum húsakynnum félagsins í gamla Lækjarskóla og er gengið inn um aðalinngang að framanverðu.   Sýningin verður eins og fyrr segir frumsýnd laugardaginn 25. mars kl 17:00 en næstu sýningar eru sunnudaginn 26. mars, laugardaginn 1. apríl, laugardaginn 8 apríl og sunnudaginn 9. apríl. klukkan 14:00 alla dagana. Upplýsingar um sýningar og miða fást í síma 848-0475. Athugið að frítt er fyrir Hafnfirðinga á 3. sýningu 1. apríl samkvæmt venju, á meðan húsrúm...

Sjá meira

Leikfélag Sauðárkróks æfir Vífið

Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen, er annað verkefni Leikfélags Sauðárkróks á leikárinu og verður frumsýnt í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl nk. Verkið var m.a. sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku leikhúsgrúppunni við fantagóðar undirtektir árið 2001 og fjallar um John nokkurn Smith sem er ósköp venjulegur maður nema hvað hann er óvart giftur tveimur konum. Einn daginn lendir hann í óhappi sem veldur því að upp um hann gæti komist og spinnast þá upp ótrúlegustu lygar og flækjur til að koma í veg fyrir að konurnar frétti hvor af annarri.   Þetta gerir leikritið að eldfjörugum og bráðskemmtilegum farsa með hurðarskellum og öllu tilheyrandi. Leikstjóri er Þröstur...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur

Nýtt og áhugavert