Author: lensherra

Stuttverkasamkeppni 2006

Eftirfarandi 15 stuttverk voru valin af forvalsnefnd fyrir Stuttverkasamkeppni 2006. Nú er komið að lesendum að velja þau bestu. Veldu 3 verk, hvorki fleiri né færri. Stuttverkin eru hér í PDF-formi. ATH! Ef valin eru fleiri eða færri en 3 verk teljast ÖLL þau atkvæði ógild! Borið hefur á því að ekki sé farið eftir þessu. Hér með er ítrekað að ef atkvæði eru greidd FLEIRI eða FÆRRI en 3 verkum, falla þau atkvæði öll niður og teljast ekki með í lokaniðurstöðum! Atkvæðagreiðslu lýkur á miðnætti 8. nóvember og úrslit verða tilkynnt föstudaginn 10. nóvember. Hægt er að kjósa...

Sjá meira

Frá Leikfélagi Hörgdæla

Aðalfundur leikfélagsins var haldinn mánudagskvöldið 16. október 2006.Í stjórn félagsins eru: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, formaður, Kristín Haraldsdóttir varaformaður, Ásgeir Már Hauksson gjaldkeri, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir ritari og Bernharð Arnarson meðstjórnandi.Á fundinum var samþykkt að Arnsteinn Stefánsson, Stóra-Dunhaga, yrði heiðursfélagi leikfélagsins.Nú í haust mun Leikfélagið setja upp dagskrá um Kristján frá Djúpalæk (Dreifar af dagsláttu) í umsjón Sunnu Borg, stefnt er að sýningum 18. og 19. nóvember.Eftir áramótin hefjast svo æfingar á mögnuðu leikverki á Melum. Sýningar á því hefjast væntanlega í...

Sjá meira

Danny and the deep blue sea

Austurbær er að hefja sýningar á leikritinu Danny and the deep blue sea eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box”  rými á efri hæðinni, í Silfurtunglinu. Brit Pop leikrit, beint frá Bretlandi, beint í æð. Leikendur eru bresku hjónin Nicolette Morrison og Matthew Hugget. Leikið er á ensku. Danny var sýnt í Etcetera Theatre í Camden í London við feikigóðar undirtektir. Þetta er saga Danny og Robertu, tveggja einmana sála sem hittast á bar og hefja samræður. Saga fólks sem varð utanveltu í samfélaginu, “lágstéttar pakk”, eða “white trash”, Þetta er saga þriggja kynslóða sem þurfa að lifa við bágar aðstæður og fjallar leikritið um börn, uppeldi, drykkju, mistnotkun og ást. Þetta er ofbeldisfull, hröð og hættuleg ástarsaga.. Þetta er saga fólks sem mann grunar ekki að geti elskað en elskar svo heitt vegna þess að það hefur farið á mis við foreldraást, væntumþykju og hlýju í lífinu.Heimurinn sem verkið gerist í er sá sami og leikararnir ólust upp í, þetta er heimur lágstéttarinnar. Leikritið fæðist mikið með leikurunum sjálfum, þeim Nicolette og Matthew en þau  urðu ástfangin og giftu sig innan mánaðar frá fyrstu kynnum og samband þeirra er að mörgu leiti svipað og í Danny and the deep blue sea.Jón Gunnar var að útskrifast sem leikstjóri frá Drama Centre London þegar Nicolette bað hann um að leikstýra sér og...

Sjá meira

Manntafl í Borgarleikhúsinu

Ákveðið hefur verið að taka upp sýninguna Manntafl eftir Stefan Zweig frá fyrra leikári. Sýningin fékk afar góðar viðtökur og var ÞórTulinius tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir einleikinn.  Aðeins 4 sýningar eru í boði og sú fyrsta verður sunnudaginn 29.október.   Manntafl er hiklaust ein af perlum skáldverka tuttugustu aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyðingaættum við nasisma Hitlers, sem hafði lagt undir sig hans heimaland. Hún er uppgjör við stríð og hörmungar þess, ómennskt ofbeldið og niðurlægingu mannanna. Sagan er rík af áleitnum umfjöllunarefnum um fíknir og áráttur sem hrjáð geta manninn. Sagan er skrifuð af slíkri snilld, að...

Sjá meira

Láttu ekki deigan síga, Guðmundur

Þá er loksins komið að því að áhorfendur geti séð uppfærslu á verkinu  “Láttu ekki deigan síga Guðmundur”, hjá Leikfélagi Siglufjarðar í leikstjórn hins magnaða leikstjóra Guðjóns Sigvaldasonar.  Höfundar eru Hlín Agnarsdóttir og Edda Björgvinsdóttir. Frumsýnt verður þann 27. október í Bíó Café og hefst sýningin kl. 21:00.  Húsið opnar kl. 20:00. Félagar í L.S. hafa lagt nótt við dag síðustu viku við að leggja lokahönd á sviðsmynd, búninga og annað og því hafa mörg grútsyfjuð andlit sést á mörgum vinnustöðum bæjarins sem og í Grunnskólanum, en leikfélagið nýtur stuðnings nemenda í leiklist í Grunnskóla Siglufjarðar.   Næstu sýningar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert