Sakamál á svið
Kunngert verður um vinningshafa í leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins og Spron “Sakamál á svið” fimmtudaginn 2.nóvember kl.18 í forsal Borgarleikhússins. Ríflega 30 verk bárust í samkeppnina en sex höfundar voru valdir til að fullvinna hugmyndir sínar að sakamálaverkunum og fengu til þess fjóra mánuði. Nefnd, skipuð Bjarna Jónssyni leikskáldi, Guðjóni Pedersen leikhússtjóra, Jóhannesi Helgasyni menningarfulltrúa Spron, Jórunni Sigurðardóttur útvarpskonu og Steinunnar Knútsdóttur listræns ráðunauts Borgarleikhússins, hefur komist að niðurstöðu um þrjú verk sem hljóta vinning. Vinningsverkið fer á fjalir Borgarleikhússins á næsta leikári og útvarpsleikhúsið tekur annað verk til flutnings í útvarpsleikhúsinu, hin fjögur verkin verða leiklesin í Borgarleikhúsinu ...
Sjá meira


