Author: lensherra

Úrslit í samkeppni um sakamálaleikrit

Síðasta vor blés Borgarleikhúsið til samkeppni í ritun sakamálaleikrita undir yfirskriftinni "Sakamál á svið". Keppnin var styrkt af Spron. Úrslit í keppninni voru kunngjörð í gær. Sigurverkið verður sett upp í Borgarleikhúsinu á næsta leikári auk þess sem annað verk verður sett upp af Útvarpsleikhúsinu. Alls eru sex verk í úrslitum, en hin fjögur verða leiklesin í Borgarleikhúsinu á næstunni. Alls bárust 31 hugmyndir að verkum í keppnina. Úr þeim voru 6 verk valin og höfundum þeirra gefnir fjórir mánuðir til að fullvinna handrit. Í dómnefnd sátu: Bjarni Jónsson, leikskáld Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Jóhannes Helgason, menningarfulltrúi Spron Jórunn Sigurðardóttir,...

Sjá meira

Hugleikur segir sögur í Þjóðleikhúskjallaranum

Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr ýmsum verkum Hugleiks. Ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn með fimm til sex dagskrám í vetur, og var sú fyrsta í októberbyrjun. Önnur dagskrá vetrarins verður sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum sunnudaginn 5. nóvember og fimmtudaginn 9. nóvember. Einu sinni var… heitir dagskráin að þessu sinni...

Sjá meira

Dansleikhússport í Borgarleikhúsinu

‘Watch My Back’ er nýr dansleikhúshópur sem samanstendur af listamönnum LR og Íd, það eru þeir Peter Anderson dansari og danshöfundur, Guðmundur Elías Knudsen dansari og Björn Ingi Hilmarsson leikari sem leiða saman grínhesta sína. Dansleikhússport er ný tegund afþreyingarlistar. Hópurinn spinnur gamansamar senur með hjálp áhorfenda. Áhorfendur gefa leikurum/dönsurum stikkorð sem þeir spinna út frá. Þetta er viðkvæmt en skemmtilegt "listform" þar sem allt getur gerst – það er aðeins spurning um hugmyndaflug áhorfenda. Leikið verður í kaffileikhússtemningu í forsal Borgarleikhússins þar sem barinn verður opinn, en allur leikur fer fram á ensku. Fjórar sýningar verða hjá hópnum...

Sjá meira

Maður í mislitum sokkum

Laugardaginn 4. nóvember frumsýnir Umf. Íslendingur leikritið Maður í mislitum sokkum, sem er gamanfarsi eftir Arnmund Backman. Þeir sem hafa gaman af góðu gríni ættu ekki að missa af þessu. Undanfarið hafa staðið yfir æfingar í Félagsheimilinu Brún og hafa þær gengið vel og mikið verið hlegið. Leikstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir en hún hefur víða komið við bæði sem leikari og leikstjóri. Leikendur eru átta talsins og koma frá Hvanneyri og nágrenni en leikritið fjallar um gamlan mann sem ratar ekki heim því hann hefur misst minnið og skrautlegum tilburðum nokkurra vina við að koma honum til síns...

Sjá meira

Höll ævintýranna í Möguleikhúsinu

Sunnudaginn 5. nóvember 2006 kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið við Hlemm nýtt barnaleikrit, Höll ævintýranna, eftir Bjarna Ingvarsson. Hér er á ferðinni leiksýning fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja til 8 ára, þar sem börnin fá að taka virkan þátt í atburðarásinni og gleyma sér í heimi ævintýranna um stund. Sagnaþulur nokkur á stefnumót við áhorfendur. Í farteskinu hefur hann sögur og ævintýri sem hann færir í leikrænan búning á einfaldan hátt. Geiturnar þrjár trítla yfir brúna þar sem risinn ógurlegi liggur í leyni, undurfögur höll býr yfir ótal ævintýrum og haltur hani svífur um loftin blá á vængjum ímyndunaraflsins.   Leikari sýningarinnar er Bjarni Ingvarsson og leikstjóri Sigurður Sigurjónsson, tónlist er eftir Jónas Þóri og Katrín Þorvaldsdóttir hannaði leikmynd, búninga og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert