Author: lensherra

Mjallhvít í Þjóðleikhúsinu

Laugardaginn 14. apríl n.k hefjast í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu sýningar á brúðuleikritinu um Mjallhvíti í uppfærslu brúðuleikhússins 10 fingra sem Helga Arnalds stjórnar. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan, Helga Arnalds börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt með töfrabrögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng.  Helga Arnalds hlaut menntun sína í leikhúsháskólanum Instituto del Teatro í Barcelona og í leikhúsháskólanum DAMU í Prag. Hún stundar nú nám við Listaháskóla Íslands í myndlist. 10 fingur er eins manns ferðaleikhús sem var stofnað árið...

Sjá meira

Bingó! Frumsýning 14. apríl

Leikfélagið Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa sameinað krafta sína og setja nú upp leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Í leikritinu Bingó hittast fimm manneskjur reglulega og spila Bingó. Eins og leikurinn er í eðli sínu einfaldur og segir sig nánast sjálfur, er eitthvað með tölurnar sem tengir okkur nánar persónum verksins, ekki ósvipað og tölurnar gera sig í Lost á mánudagskvöldum. Persónurnar bregðast við þeim tölum sem bingóstjórinn kallar upp, berast fram og aftur í tíma og leynt og ljóst er takmarkið bundið við stóra vinninginn. Hefur þú bragðað Bingóte? Séð Bingóbók? Dreymir þig stóra...

Sjá meira

Salka Valka á Skaganum

Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sölku Völku eftir skáldsögu Halldórs Laxness miðvikudaginn 4. apríl. Leikstjórn er í höndum Ingu Bjarnason sem vann leikgerð verksins í samvinnu við leikhópinn. Leikgerðin byggir á leikgerð Hilmars Jónssonar annarsvegar og Stefáns Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar hinsvegar. Í þessari leikgerð er meira lagt upp úr lífi Sölku Völku en í hinum tveimur.  Sýningar verða í gamla Arctic-húsinu við Vesturgötu á Akranesi og það er vel við hæfi að setja Sölku Völku upp í gömlu fiskvinnsluhúsi, enda á sagan sér stað í litlu sjávarþorpi þar sem lífið er saltfiskur. Skagaleikflokkurinn hefur staðið í ströngu við að gera nýtt...

Sjá meira

Killer Joe, síðustu sýningar í vor

Aukasýning á skírdag. Af óviðráðanlegum ástæðum verður sýningum Skámána á KILLER JOE í Borgarleikhúsinu að ljúka nú í apríl en verkið verður tekið upp af fullum krafti í haust. Aðeins 4 sýningar eru eftir í vor. Þetta magnaða verk hefur hlotið frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Einn leikaranna, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, hefur hlotið inngöngu í hinn virta Juilliard listaháskóla í New York í haust og eru þetta því síðustu forvöð að sjá hann í sýningunni. Vegna mikillar aðsóknar hefur verið bætt inn aukasýningu á skírdag kl.20 en síðustu sýningar verða svo laugard.14.apríl, föstud.20.apríl og laugard. 21.apríl. Leikendur auk...

Sjá meira

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2007

verður haldinn að Hallormsstað dagana 4. til 6. maí. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2006-2007. Endilega takið með ykkur eintök ykkar leikfélaga. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Þið sem enn eigið eftir að sækja um gerið það sem allra fyrst. Umsóknareyðublöð má nálgast hér til hægri á forsíðu www.leiklist.is. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 18. apríl til skrifstofu Bandalagsins í síma 5516974 eða á netfangið info@leiklist.is .   Dagskrá: Föstudagur 4. maí kl. 19.00 Kvöldverður – 20.00 Frjálsar umræður um allt milli himins og jarðar, svo sem: a)...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert