Leikritasamkeppni á Menningarhátíð Grand Rokk
Leikfélagið Peðið hefur ákveðið að blása til leikritasamkeppni í tilefni Menningarhátíðar Grand Rokk. Skilafrestur á leikritum eða úrdráttum úr slíkum verður að skila fyrir 15.maí næstkomandi, undir leyninafni með réttur nafni og símanúmeri í lokuðu umslagi. Skila skal leikritunum á Grand Rokk Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík. Dómnefnd skipuð Viðari Eggertssyni leikstjóra, Þorgeiri Tryggvasyni Hugleikara og Lísu Pálsdóttur formanni Peðsinsm mun velja eitt verk sem hlýtur vegleg verðlaun og ætlunin er að leikfélagið sýni vinningsverkið á Menningarhátíðinni að ári. Menningarhátíð Grand Rokk verður haldin dagana 31.maí 03.júní 2007. Þetta er fimmta Menningarhátíðin og verðu hún jafn spennandi og áður....
Sjá meira


