Author: lensherra

Verkefni Kómedíuleikhússins leikárið 2007 – 2008

Kómedíuleikhúsið fagnar 10 ára afmæli í ár og er því komandi leikár sérlega viðmikið og glæsilegt. Í nóvember frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan einleik Jólasveinar Grýlusynir eftir Elfar Loga Hannesson og Soffíu Vagnsdóttur. Leikurinn er byggður á nýjum jólasveinakvæðum eftir Soffíu. Kvæðin úr sýningunni verða gefin út á bók í tilefni að frumsýningunni með teikningum eftir Marsibil G. Kristjánsdóttur. Verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson verður á sínum stað en Gísli er nú að hefja sitt fjórða leikár. Gísli byrjar leikárið með stæl og fer hringinn í kringum landið í haust en leikurinn hefur verið sýndur yfir 150 sinnum bæði hér heima og erlendis....

Sjá meira

Leikárið 2007-2008 í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið endurheimtir brátt sinn forna glæsileika eftir viðamiklar utanhússviðgerðir. Vetrardagskráin verður ekki síður glæsileg en húsið sjálft en í vetur frumsýnum við fjögur ný íslensk leikrit, tvö eldri íslensk verk og sjö erlend leikrit.Á nýju leikári verða fjögur ný íslensk verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Áslaug Jónsdóttir, margverðlaunuð bókverkakona, skrifar sitt fyrsta leikverk fyrir Þjóðleikhúsið sem og stallbróðir hennar úr rithöfundastétt, Hallgrímur Helgason. Einnig sýnir Þjóðleikhúsið ný verk eftir leikskáldin Bjarna Jónsson og Hugleik Dagsson. Aukinheldur verða tvö eldri íslensk verk á fjölunum; Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og leikritið Sólarferð, eitt vinsælasta leikrit Guðmundar Steinssonar. Vinkonurnar Skoppa og Skrítla snúa...

Sjá meira

Nýtt leikár hafið hjá Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið er nú að hefja átjánda leikár sitt, en frá upphafi hefur leikhúsið lagt áherslu á að bjóða upp á frumsamið íslenskt efni fyrir börn og unglinga og verður þetta leikár svo sannarlega engin undantekning frá þeirri reglu.Það verða níu íslensk verk á boðstólum hjá Möguleikhúsinu í vetur, ein ný sýning, ein sem tekin er upp að nýju eftir nokkurra ára hlé, fjórar frá fyrra leikári og tvær gestasýningar. Allt eru þetta farandsýningar sem unnt er að koma með í skóla, auk þess sem hópum býðst að koma og sjá sýningarnar í sal Möguleikhússins við Hlemm. Í leikhóp Möguleikhússins...

Sjá meira

Opið hús í Borgarleikhúsinu

Í tilfefni af því að 111 leikár Leikfélags Reykjavíkur er að hefjast verður opið hús í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 2. september, á milli klukkan 15 og 17. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Jafn framt verður boðið upp á veitingar fyrir unga sem aldna og starfsfólk Borgarleikhússins, með leikhússtjórann í broddi fylkingar, bakar vöfflur fyrir gesti og gangandi, það verður heitt á könnunni og svaladrykkir fyrir börnin. TónlistLifandi tónlist í tvo tíma. Geirfuglarnir taka lög úr ýmsum sýningum úr Borgarleikhúsinu eins og Gretti, Gosa og Ást ofl. Opnar æfingarKynning verður á nýju leikári hjá...

Sjá meira

Lík í óskilum í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 1. september verður fyrsta frumsýning leikársins hjá Leikfélagi Reykjavíkur og er hún á Litla sviði Borgarleikhússins. Það er farsinn Lík í óskilum eftir Anthony Neilson sem opnar leikárið hjá LR og það er Steinunn Knútsdóttir sem leikstýrir.
  Þetta er gamanleikur um óborganlegt lögguteymi sem fær það hlutverk að boða eldri hjónum váleg tíðindi á aðfangadagskvöld. Áður en erindið hefur verið útskýrt að fullu kemur upp misskilningur sem erfitt reynist að leiðrétta. Fljótlega eykst misskilningurinn, fleiri persónur slást í hópinn, flækjan verður sífellt flóknari og hjartveiki eiginmannsins gerir verkefni lögreglunnar nánast ómögulegt. Löggur, lygar og lygileg atburðarrás!Leikarar: Þórhallur Sigurðsson,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert