Íslandsklukkan frumsýnd á Húsavík
Þann 17. nóvember n.k. frumsýnir Leikfélag Húsavíkur, Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness, í leikstjórn Arnórs Benónýssonar. Tónlist er eftir Guðna Bragason og hann er einnig tónlistarstjóri sýningarinnar. Byggt er á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leiklistarskólann árið 1980. Hér er um að ræða eina af bókmenntaperlum þjóðarinnar sem ekki má falla í gleymskunnar dá. Voru persónur leikverksins til í raun og veru? Var ástarsaga Snæfríðar og Arnas Arnæusar þyrnum stráð eða eintóm hamingja? Var Jón Hreggviðsson morðingi eða ekki? Beygist sögnin að elska á latínu; amo, amas, amat, amamus, amatis, amant? Hvernig bregst stelpa við þegar þrír karlmenn sýna henni áhuga?Úr verkinu: Hvenær...
Sjá meira


