Sjóræningjaprinsessan frumsýnd á Selfossi
Föstudaginn 20. febrúar frumsýnir Leikfélag Selfoss nýtt íslenskt fjölskyldu – og barnaleikrit, Sjóræningjaprinsessuna, eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt leikstýrir verkinu. Ármann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta ásamt Sævari Sigurgeirssyni. Með helstu hlutverk fara Rakel Ýr Stefánsdóttir, Bjarki Þór Sævarsson, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og Stefán Ólafsson en 16 leikarar og 4 hljóðfæraleikarar taka þátt í sýningunni. Leikritið segir frá Soffíu sem alist hefur upp hjá gistihúsinu Sporðlausu hafmeyjunni á friðsælli eyju í Suðurhöfum allt frá því að hún kom þangað með dularfullum hætti sem ungabarn. Ólíkt Matta uppeldisbróður sínum þráir hún að lenda í ævintýrum og...
Sjá meira


