Author: lensherra

Dagur rauða nefsins

Föstudaginn 4. desember verður bein útsending úr Borgarleikhúsinu frá söfnunarþætti í tilefni af degi rauða nefsins og verður þátturinn í opinni dagskrá Stöðvar 2. Dagskráin er sneisafull af spennandi atriðum og munu fjölmargir listamenn leggja góðu málefni lið með kímni sem opnar hug okkar fyrir fallegum skilaboðum. Listamenn Borgarleikhússins vera í broddifylkingar og mörg skemmtileg brot úr verkum hússins verða sýnd. Dagur rauða nefsins er alþjóðlegur söfnunardagur fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og verður nú haldinn í þriðja sinn hér á landi. Eins og landsmenn þekkja orðið er hægt að leggja málefninu lið með því að festa kaup á...

Sjá meira

Leiksýning á ensku í Hafnarfirði

Leikritið Devotion verður sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla dagana 18. og 19. desember nk. Verkið er samstarf milli Fjölþjóðlega leikhópsins The Fiasco Division, Aldísar Davíðsdóttur og Árna Grétars Jóhannssonar. Devotion er unglingaleikrit fyrir börn, unglinga og fullorðna. Verkið er hrátt, fyndið og ögrandi og fjallar um átök milli þriggja ungra einstaklinga í leit að sjálfum sér og sínum stað í samfélaginu. Í sýningunni er velt upp hugmyndum um það hvenær leikur hættir að vera leikur og verður að alvöru. Tjáning í gegnum ýmsar tegundir ofbeldis er ein af þungamiðjum verksins og snertir það einnig á viðkvæmum málum,...

Sjá meira

Haustfundur Bandalags ísl. leikfélaga 13.–15. 11. 2009

Haldinn að Öngulsstöðum í Eyjafirði 13.–15. nóvember 2009.1. Þorgeir Tryggvason formaður Bandalagsins bauð viðstadda velkomna og setti fundinn. Hann kynnti fulltrúa Félags leikstjóra á Íslandi, Steinunni Knútsdóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur, sem komnar voru til að kynna handbók leikstjóra.2. Steinunn Knútsdóttir kynnti Handbók leikstjóra og baráttu leikstjórafélagsins fyrir leiðréttingu á ímynd leikstjóra á Íslandi. Hún lýsti yfir ánægju með viðleitni áhugaleikara til að mennta sitt fólk í leikstjórn í Bandalagsskólanum sem er í raun eina leikstjórnarnámið sem boðið er upp á á Íslandi. Hún lagði áherslu á að metnaður væri í fyrirrúmi í svona starfi, hver sem væri að leikstýra. Þetta snérist ekki bara um að það væri alltaf gaman, það þyrfti fleira að koma til til þess að fólk entist í að eyða frítíma sínum þetta ár eftir. Hún sagði að verið væri vinna í því að uppfæra upplýsingar um alla meðlimi FLÍ á vefsíðu þeirra og þar getur fólk kynnt sér feril og menntun þeirra.Kolbrún Halldórsdóttir kynnti einnig Handbók leikstjórans. Hún sagði handbókina vera hugsaða sem tékklisti fyrir áhugaleikfélög og þá leikstjóra sem vinna með þeim.Almenn ánægja var hjá viðstöddum með þetta framtak FLÍ. Steinunn sagði að FLÍ vildi með þessu stuðla að því að hver sem tekur að sér leikstjórn, ekki bara félagar þeirra, vinni sína vinnu af metnaði og kunnáttu.Þorgeir benti á í sambandi við að leiklistarstarf „eigi ekki bara að vera gaman“ sé málið kannski...

Sjá meira

Fjórir listamenn fá styrk úr Egner-sjóðnum

Á lokasýningu Kardemommubæjarins í Þjóðleikhúsinu s.l. sunnudagskvöld, sem vel að merkja var 98. sýningin, var fjórum listamönnum veittur styrkur úr Egner-sjóðnum og hlaut hver þeirra 250.000 kr. Þetta eru þau Selma Björnsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, Baldur Trausti Hreinsson sem lék Bastían bæjarfógeta, Kjartan Guðjónsson sem fór með hlutverk ræningjans Jónatans og Þórhallur Sigurðsson sem hefur sett upp fjöldan allan af barnasýningum og hefur auk þess yfirumsjón með Kúlunni, litla barnasviði Þjóðleikhússins. Þess má geta að um þessar mundir eru tvær barnasýningar í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar í sýningu í húsinu. Sindri Silfurfiskur í Kúlunni og Leitin að jólunum, sem nú er...

Sjá meira

Maríuhænan – Dansleikhús fyrir börn frá 9 mánaða aldri

Helgina 5. og 6. desember koma góðir gestir frá Noregi í heimsókn í Kúluna, barnaleikhús Þjóðleikhússins og sýna dansleikhús án orða fyrir allra yngstu leikhúsgestina, allt frá ungabörnum til fjögurra ára barna. Tvær sýningar eru hvorn daginn, kl. 13:30 og 15:00. Að auki eru forsýningar á miðvikudag og fimmtudag sem allir geta sótt. Hrekkjóttur álfur og óörugg maríuhæna villast inn í litlaust land. Fljótlega taka undarlegir hlutir að gerast, steinar og sveppir blikka, sólin og tunglið svífa yfir og landið breytist í ævintýraskóg. Allir þessir töfrar hafa mikil en ólík áhrif á álfinn og maríuhænuna en að lokum sameinast...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert