Leikfélaga Ölfuss æfir Stútungasögu
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á gaman- og stríðsleiknum Stútungasögu eftir þau Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikritið gerist undir lok Þjóðveldisaldar og greinir frá hvernig þeir Stútungar, nýorðnir valdamestir allra á landinu, glopra sjálfstæði landsins til Norðmanna fyrir röð óheppilegra tilviljanna og mannlega glópsku. Ætlunin er að frumsýna verkið 22. október og leikstjóri er einn höfunda, Ármann Guðmundsson. Á þriðja tug leikara taka þátt í sýningunni, sem er sú umfangsmesta sem Leikfélag Ölfuss hefur ráðist í. Tónlist skipar einnig nokkurn sess í verkinu og er hún samin af höfundunum Ármanni Guðmundssyni og Þorgeiri...
Sjá meira


