Hauststarf Halaleikhópsins að hefjast
Starfsemi Halaleikhópsins leikárið 2010-11 hefst með félagsfundi í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00, þann 2. október þar sem verkefni leikársins verða kynnt. Aðalverkefnið er gamanleikurinn Góðverkin kalla eftir þríeykið Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson, sem frumsýnt verður eftir áramót, en ráðnir hafa verið tveir leikstjórar til að setja verkið upp, þau Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Þau munu einnig halda námskeið í haust með yfirskriftinni Hvernig skapar maður persónu? Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem...
Sjá meira


