Námsskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
Nýstofnaður Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann mun standa fyrir leiklistarnámskeiðum í vetur. Fyrsta námskeið hefst þriðjudaginn 6. sept. og stendur til og með 11. okt. Á námsskeiðinu munu þeir Magnús og Þorsteinn miðla af eigin reynslu en styðjast við klassíka aðferðafræði Stanislavskis, Mikhael Chekhov, Lee Strasbergs o.fl. í bland við nýja strauma og stefnur. Einnig munu þeir sækja nokkuð í brunn Helga Skúlasonar leikara sem rak eigin Leiklistarskóla um árabil en þar lágu leiðir Magnúsar og Þorsteins saman fyrst. Magnús og Þorsteinn voru samferða í gegnum Leiklistarskóla Íslands og útskrifuðust þaðan vorið 1991. Báðir með áratuga reynslu af leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.Kennt er á þriðjudagskvöldum...
Sjá meira


