Fyrst tökum við Manhattan ..
Sviðslistaþing LSI í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4. september kl 11.00 – haldið í tengslum við sviðslistahátíðina Lókal. Fyrirlesari er Åsa Edgren, stjórnandi Loco World. Í fyrirlestri sínum mun Åsa kynna fyrir íslenska sviðslistasamfélaginu sameiginlegt norrænt átak í Norður Ameríku sem ætlað er að auka sýnileika norræna sviðslista. Hún mun fjalla um verkefni umboðsskrifstofunnar Loco World frá árinu 2004, samstarf stofunnar við listamenn og greina frá því hvernig markviss uppbygging hefur skilað listafólki auknum tekjum og orðstír. Hvernig verða draumar að veruleika? Af hverju er innri hvöt listamannsins forsenda árangurs? Hvers vegna skiptir tímastjórnun, skipulag og samningstækni máli þegar ætlunin er...
Sjá meira


