Fjölbreytt dagskrá hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs er með margt spennandi á prjónunum á komandi leikári. Í september verður í boði leiksmiðja sem er hugsuð fyrir byrjendur og styttra komna í leiklist. Unglingadeild félagsins hefur störf 19. september með námskeiði undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur og í kjölfarið verður sett upp sýning sem áætlað er að frumsýna um miðjan nóvember. Í október verður haldið 3ja daga námskeið fyrir vana leikara undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar. Í nóvember hefjast síðan æfingar fyrir nýtt leikverk með frumsaminni tónlist sem frumsýnt verður um mánaðamótin jan-feb. Verkið ber vinnuheitið Hringurinn. Fljótlega eftir áramót heldur félagið svo sitt árlega Stjörnuljósakvöld sem er skemmtikvöld með blandaðri dagskrá. Í apríl er síðan stefnt að vorverkefni sem enn...
Sjá meira


