Author: lensherra

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Tími: laugardaginn 17. september og sunnudaginn 18. september frá kl. 9 – 15. Heildartími námskeiðs 18 kennslustundir/12 klukkustundir. Kennari: Benedikt Axelsson lýsingahönnuður Námskeiðsgjald: 27.500 kr. Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (gamli Sjómannaskólinn), Hátíðarsalur 2. hæð til vinstri. Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is Ath! Námskeiðsgjöld...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss kynnir vetrarstarfið

Vetrarstarfi Leikfélags Selfoss verður ýtt úr vör með hinum árlega haustfundi í Litla leikhúsinu við Sigtún mánudaginn 12. september kl. 20:30. Á fundinum verður dagskrá vetrarins kynnt en margir stórir sem smáir viðburðir verða á dagskrá á leikárinu þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi bæði sem áhorfendur og þátttakendur. Fundurinn verður léttur og notalegur að vanda, heitt kaffi á könnunni og allir velkomnir. Sérstaklega tökum við vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sívaxandi leikhúsfjölskyldu eða vill kynna sér starf leikfélagsins betur.  ...

Sjá meira

Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig

Leikhópurinn Fjöður í hatti sýnir leikritið Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig á Norðurpólnum. Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn til að sýna henni nýjustu tilraunina. Hann hefur nefnilega fundið leið til að kitla sjálfan sig! Sprenghlægileg og hádramatískt atvik eiga sér stað í þessari örlagaríku heimsókn Vönju frænku til Flosa. Ósýnilegur köttur skýtur upp kollinum, frisbídiskar fljúga um og Dr. Flosi þarf að...

Sjá meira

Fyrst tökum við Manhattan ..

Sviðslistaþing LSI í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4. september kl 11.00 – haldið í tengslum við sviðslistahátíðina Lókal. Fyrirlesari er Åsa Edgren, stjórnandi Loco World. Í fyrirlestri sínum mun Åsa kynna fyrir íslenska sviðslistasamfélaginu sameiginlegt norrænt átak í Norður Ameríku sem ætlað er að auka sýnileika norræna sviðslista. Hún mun fjalla um verkefni umboðsskrifstofunnar Loco World frá árinu 2004, samstarf stofunnar við listamenn og greina frá því hvernig markviss uppbygging hefur skilað listafólki auknum tekjum og orðstír. Hvernig verða draumar að veruleika? Af hverju er innri hvöt listamannsins forsenda árangurs? Hvers vegna skiptir tímastjórnun, skipulag og samningstækni máli þegar ætlunin er...

Sjá meira

RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ

Útvarpsleikhúsið – RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ eftir Jón Atla Jónasson til evrópsku ljósvakaverðlaunanna, PRIX-EUROPA 2011, í flokki útvarpsleikrita. Hátíðin er nú haldin í 25. skipti í Berlín dagana 22.-29. október næstkomandi. Keppt er um besta efnið í Evrópu bæði í útvarpi og sjónvarpi, í hinum ýmsu flokkum. Alls voru 159 útvarpsverk frá 35 löndum send í keppnina sem útvarpsefni ársins. DJÚPIÐ keppir um verðlaunin sem besta útvarpsverkið í flokki stakra útvarpsleikrita, en eingöngu voru valin 22 verk í þá keppni, af þeim sem send voru inn.Síðan mun fjölskipuð dómnefnd vinna frá morgni til kvölds frá sunnudeginum 23. október...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert