Listaverkið frumsýnt 29. september
Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtudaginn Listaverkið eftir Yazmina Reza en mörgum leikhúsunnendum er í fersku minni sýning Þjóðleikhússins á Listaverkinu árið 1997 með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Ingvari E. Sigurðssyni og Baltasar Kormáki. Í þessari endurfrumsýningu verksins sameina þeir á ný krafta sína á leiksviði undir leikstjórn Guðjóns Pedersens og snúa aftur í sömu hlutverkum. Listaverkið er eitt allravinsælasta leikrit síðustu áratuga. Verkið var frumflutt í París árið 1994 og hlaut hin eftirsóttu Molière-verðlaun. Síðan þá hefur það verið sýnt við miklar vinsældir víðsvegar um heiminn. Listaverkið er bráðfyndinn gamanleikur með heimspekilegum undirtóni um þrjá góða vini og alvarlega uppákomu...
Sjá meira


