Author: lensherra

Hassið í Halanum

Halaleikhópurinn hefur ráðið leikstjórana Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson til að leikstýra leikritinu Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, jafnframt því að uppfæra og staðfæra verkið. Æfingar munu hefjast í nóvember og fyrirhugað er að frumsýna kringum mánaðarmótin janúar / febrúar 2012. Hassið hennar mömmu var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1982  í Iðnó og síðan flutt í Austurbæjarbíó og sýnt þar á miðnætursýningum og gekk þar að ýmsum hugstola eins og greint var fá í Vísi 3. jan. 1983. Þetta er farsi, afi og mamma Luigi eru farin að rækta og reykja hass og hann sér að það er...

Sjá meira

Með fullri reisn á ný

Leikfélag Hörgdæla hefur ávkeðið að taka aftur upp sýningar á Með fullri reisn þar sem hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi og með hundruð manna á biðlista sl. vor. Alls var leikritið sýnt 30 sinnum og sáu það 2.800 manns en nú verður 10 sýningum bætt við og hefjast þær 20. október. Forsala á sýninguna er hafin og því um að gera að tryggja sér miða hið snarasta því ekki verða fleiri sýningar en þessar 10. Leikritið er eftir Terrence McNally og þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hefur hann, ásamt leikhópnum staðfært verkið...

Sjá meira

Kortasala hafin hjá Leikfélagi Akureyrar

Kortasala fyrir nýtt leikár er hafin hjá Leikfélagi Akureyrar og er óhætt að segja að mikið verði í boði í leikhúsinu fyrir Akureyringa í vetur. Leikárið byrjar á að í september verða tvær gestasýningar en í október verða tvær frumsýningar á vegum LA, Svarta kómedían og Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar. Í nóvember verða svo frumsýnd tvö samstarfsverkefni. Næstu vikurnar eru eftirfarandi leikverk á fjölunum hjá LA:Fjalla Eyvindur er gestasýning frá leikhópnum Aldrei óstelandi og verður sýnd í Rýminu 23. og 24. september. Nýdönsk Í nánd verður á fjölum Samkomuhússins helgina 30. sept. til 1. okt. Nýdönsk mætir hér...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Tristram og Ísönd

Nú um helgina verða síðustu sýningar á uppsetningu Leikfélagsins Sýna á Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýnt verður föstudaginn 16., laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. september og hefjast allar sýningar kl. 20. Ekki verða fleiri sýningar þar sem einn leikaranna heldur erlendis í leiklistarnám. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Sagan af Tristram og Ísönd er ein þekkasta ástarsaga miðalda en hún segir frá riddaranum Tristram, systursyni Markis Englandskonungs, sem fengið er það verkefni að vinna ástir Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir hönd frænda síns. Ekki vill þó betur til en svo...

Sjá meira

Leikfélag Ölfuss æfir Himnaríki

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á hinu bráðskemmtilega gamanleikriti Himnaríki eftir Árna Ibsen. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og er það í þriðja sinn sem hann starfar með LÖ en hann leikstýrði tveimur sýningum hjá félaginu árið 2009, Blúndum og blásýru og Manni í mislitum sokkum. Himnaríki verður frumsýnt þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert