Author: lensherra

Námskeið fyrir börn hjá Leynileikhúsinu

Leynileikhúsið hefur nýja önn á áttunda starfsári sínu af miklum krafti og stórkostlegri leikgleði! Vornámskeið Leynileikhússins 2012 hefjast í byrjun febrúar. Námskeiðin eru aldursskipt fyrir börn og unglinga í 2-10. bekk og eru haldin í samstarfsskólum okkar víðsvegar um höfðuborgarsvæðið. Hvert námskeið tekur 12 vikur og lýkur með sýningu í atvinnuleikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur. Þar fá ungu leikararnir búninga og leikhúsmálningu og aðstandendum boðið að koma og sjá þá blómstra á sviðinu. Samstarfsskólar Leynileikhússins  þar sem námskeiðin fara fram eru: Kársnesskóli, Rimaskóli, Seljaskóli, Langholtsskóli, Vesturbæjarskóli, Ísaksskóli, Flataskóli í Garðabæ, Grunnskóli Seltjarnarness,  Laugarnesskóli og Hvassaleitisskóli. Nánar um...

Sjá meira

Frystiklefinn sýnir Góðir hálsar

Nýjasta atvinnuleikhúsið á Íslandi, Frystiklefinn í Rifi, tekur nú aftur upp sýningun Góðir Hálsar. Sýningin er byggð á sögu Axlar-Bjarnar og var frumsýnd í ágúst 2011. Þar sem leikarar sýningarinnar höfðu öðrum hnöppum að hneppa þá var sýningatíminn stuttur en sýningin fékk frábæra gagnrýni og góðar viðtökur áhorfenda og því var ráðistí að setja hana aftur í gang í leikhúsinu nú í janúar. Höfundur er Kári Viðarsson og leikstýrir hann verkinu líka ásamt Árna Grétari Jóhanssyni. Sýningin er byggð á sögum af Axlar-Birni og sækist eftir að nýta sér leikhúsformið til fulls til að segja sögu morðingjans. Áhorfendur taka...

Sjá meira

Nýdönsk í nánd aftur á svið laugardaginn 7. janúar

Nýdönsk snýr aftur á Litla svið Borgarleikhússins á laugardagskvöld. Þessi einstaki tónleikur Nýdanskrar sló rækilega í gegn á síðasta leikári, hætti fyrir fullu húsi og snýr því aftur í takmarkaðan tíma. Alls verða fimm sýningar á verkinu, allar um helgar kl. 22. Höfundar verks og flytjendur eru meðlimir Nýdanskrar. Nýdönsk mætir áhorfendum á nýjan hátt í návígi leikhússins. Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana. Hvers vegna hætti Daníel? Og af hverju byrjaði hann aftur? Er Hólm raunverulegt ættarnafn Ólafs? Er Stefán hæsti...

Sjá meira

Annáll Kómedíuleikhússins 2011

„Nú árið er liðið í aldana skaut og aldrei það kemur til baka“ það er nebblega það þá er best að pára hér niður helstu Kómedíufréttir ársins 2011. Árið var vissulega mjög kómískt og annasamt hjá litla atvinnuleikhúsinu fyrir vestan. Þrjú ný íslensk leikverk voru frumsýnd en óhætt er að segja að Kómedíuleikhúsið sé með duglegustu leikhúsum landsins við að frumflytja ný íslensk leikverk. Auk þess voru kómískir kunningjar með Gísla Súrsson fremstan í flokki, áfram á fjölunum. Act alone leiklistarhátíðin var haldin áttunda árið í röð og tvær nýjar Þjóðlegar hljóðbækur voru gefnar út. Kómedíuleikhúsið er meðal elstu...

Sjá meira

Gott kvöld á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Flestir í leikarahópnum eru á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20.00. Aðrar sýningar eru 30. desember, 4. janúar og 6. janúar, alltaf kl. 20.00. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir á Hólmavík. Í leikritinu segir frá hugmyndaríkum strák sem er aleinn heima um kvöld með bangsa sér til halds og trausts, þegar pabbi skreppur að sækja mömmu. Ótal...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert