Málþing um Jón Múla og Jónas Árnasyni þann 16. janúar
Í dag, 11. janúar 2011 er Leikfélag Reykjavíkur 115 ára. Það var stofnað 11. janúar 1897 og er eitt af elstu starfandi félögum landsins. Á undanförnum árum hafa verið haldin málþing/félagsfundir í tengslum við afmæli félagsins. Fjallað hefur verið um leikskáldin Jóhann Sigurjónsson og Guðmund Kamban, verk þeirra og æviferil. Nú er röðin komin að bræðrunum Jónasi og Jóni Múla Árnasonum. Leiðir þeirra og Leikfélags Reykjavíkur lágu fyrst saman þegar leikrit þeirra Deleríum Búbónis var sett upp í Iðnó í leikstjórn Lárusar Pálssonar. Það var frumsýnt í janúar 1959, en var upphaflega samið fyrir útvarp og flutt í Ríkisútvarpinu...
Sjá meira


