Author: lensherra

Aukasýningar á Póker í Tjarnarbíó

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á Póker eftir Patrick Marber 26. 27. og 28. janúar. Leikverkið er svört kómedía sem kafar í heim karlmennsku, valdatafls, pókerspilamennsku, keppnisanda, fíknar og kennir öllum að þú skalt ávallt spila með andstæðinginn en ekki spilin sjálf, sama hvað er í húfi. Þetta er bráðskemmtilegt verk sem samsvarar mjög vel því sem er að gerast í samfélaginu í dag. Leikstjóri er Valdimar Örn Flygenring. Leikritið hefur farið sigurförum um allt Bretland og Bandaríkin og unnið til margra verðlauna. T.d. Besta West End leikritið valið af samtökum leikskálda árið 1995 og...

Sjá meira

Æfingar á Sólarferð hafnar á Selfossi

Starf Leikfélags Selfoss er komið á fullt eftir stutt jólafrí. Æfingar á stóru uppsetningu vetrins hófust í byrjun janúar en að þessu sinni mun leikfélagið setja upp leikritið Sólarferð sem sýnt var fyrir nokkrum árum í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir. Höfundur verksins er Guðmundur Steinsson en hans þekktasta verk er Stundarfriður sem m.a. hefur verið sýnt í sjónvarpsútgáfu á RÚV. Sólarferð fjallar í stuttu máli um hjón sem fara í fyrsta sinn til sólarlanda ásamt vinahjónum til að upplifa þá dásemd sem póstkortahugmyndir þeirra af sólarparadísunum ætti að vera. Aðstæður og umhverfið er þó mun meira framandi en þau...

Sjá meira

Námskeið á vegum Leiktækniskóla Magnúsar og Þorsteins

Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann stendur fyrir námskeiði í hagnýtri og skapandi leiklist og hefst það laugardaginn 28. janúar og stendur frá kl. 13.00 til 16.30. Kennt verður sex laugardaga í röð. Námskeiðið er haldið í húsnæði Dansverkstæðisins á Skúlagötu 28 (efstu hæð KEX hostel). Námskeiðsgjald er  38.000 kr. sem greiðist að fullu við skráningu. Aldurstakmark er 18 ára. Á námskeiðinu verður farið í:
- Michael Chekhov tækni- Senuvinnu- Textagreiningu- Undirbúning fyrir áheyrnarprufur- Hugleiðslu og slökun o.m. fl. Um Magnús:
Magnús hefur leikið jöfnum höndum síðan hann útskrifaðist árið 1991. Hann var meðlimur Gus Gus frá 1994 til 1999. Gaf út einherjadisk...

Sjá meira

Saga þjóðar á Litla sviði Borgarleikhússins í janúar og febrúar

Þann 27. janúar hefjast á Litla sviðinu sýningar á sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum. Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika. Haugur af hljóðfærum, eldúsáhöldum og ýmis konar verkfærum og hjálpartækjum koma við sögu. Hundur í óskilum er skipuð þeim Eiríki Þ. Stephensen og Hjörleifi Hjartarsyni. Í Sögu þjóðar hafa þeir fengið Benedikt Erlingsson leikstjóra sér til aðstoðar. Þeir félagarnir hafa áður unnið með Benedikt þegar...

Sjá meira

Kviss búmm bang með óvenjulegt leikverk

Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang frumsýnir nýtt verk í febrúar: Hótel Keflavík. Hótel Keflavík er 24 stunda langt þátttökuverk sem hefst á BSÍ kl. 14:00 á sýningardag og lýkur á BSÍ kl. 14:00 næsta dag. Þátttakendur eru beðnir um að mæta án hverskyns tímamæla, farsíma, tölvu eða annarra samskiptatækja og með persónulegt myndaalbúm með sér. Við upphaf verksins fá þátttakendur leiðbeinandi handrit í hendur. Í þessu verki er hver og einn „hann sjálfur“, í þeim skilningi að þátttakendur taka ekki að sér hlutverk einhvers annars, þeir leysa og vinna verkefnin í handritinu út frá þeim sjálfum. Sýningarnar verða 6 talsins,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert