Author: lensherra

Sýningum fer fækkandi hjá Leikfélagi Selfoss

Nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa stórskemmtilegu uppfærslu Leikfélags Selfoss á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur og hefur verið uppselt á hverja sýninguna á fætur annarri. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta sólarinnar, enda er hún ástæðan fyrir ferðum hins fölbleika landa til útlanda, sem og frelsisins sem fylgir því að vera í fríi fjarri skyldum heimilisins.  Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Næstu sýningar:Fimmtudag 22. mars – UPPSELTFöstudag 23. mars  – Örfá sæti lausSunnudag 25. mars Fimmtudag...

Sjá meira

Kómedíuleikhúsið frumsýnir Náströnd – Skáldið á Þröm

Kómedíuleikhúsið býður upp á enn eina frumsýninguna á nýju íslensku leikverki föstudaginn 23. mars nk. Það heitir Náströnd – Skáldið á Þröm og er alþýðlegt leikrit um alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon, betur þekktan sem skáldið á Þröm, en hann var fyrirmynd Halldórs Kiljan Laxness að Ólafi Kárasyni í Heimsljósi. Verkið verður frumsýnt á söguslóðum skáldsins á Suðureyri. Höfundar eru Ársæll Níelsson og Elfar Logi Hannesson, Ársæll leikur en Elfar Logi leikstýrir. Alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon lifði engu venjulegu lífi og sjaldan var það neitt dans á rósum. Hann ritaði dagbækur frá unga aldri þar sem hann greinir nákvæmlega frá...

Sjá meira

Hótel Volkswagen frumsýnt 24. mars

Hótel Volkswagen, nýju íslenskt verk eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhúsisns nk laugardag 24. mars kl 20. Jón Gnarr skrifaði verkið í embætti sínu sem leikskáld Borgarleikhússins á síðasta leikári áður en hann lét af því embætti til að taka við embætti borgarstjóra Reykjavíkur. Hótel Volkswagen er leikrit um brjóstumkennanlega gesti á hóteli þar sem ekkert er eins og af er látið og allt getur gerst. Leikstjóri er Benedikt Erlingsson en þeir Jón hafa áður unnið saman í þáttunum Fóstbræðrum sem eru fyrir löngu orðnir sígildir. Sex leikarar og tveir þýskir fjárhundar...

Sjá meira

Ævintýri Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu

Þann 22. mars frumsýnir Gaflaraleikhúsið fjölskyldusýninguna Ævintýri Múnkhásens eftir Sævar Sigurgeirsson. Þetta er nýtt leikverk með söngvum, byggt á ótrúlegum ýkjusögum þekktasta lygara heimsins, þýska barónsins Múnkhásen (eða Karl Friedrich Hieronymus, Freiherr von Münchhausen). Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en tvö leikstjórnarverk hennar þar sem Sævar var meðal höfunda hafa unnið til Grímuverðlauna sem besta barnasýningin: Klaufar og kóngsdætur í Þjóðleikhúsinu 2005 og Bólu-Hjálmar hjá Stoppleikhópnum 2009. Þegar Múnkhásen sneri heim úr hernum, eftir bardaga í Rússlandi og Tyrklandi, sagði hann ótrúlega skrautlegar og krassandi lygasögur af ævintýrum sínum, þar sem hann átti meðal annars að hafa setið á fljúgandi...

Sjá meira

Dauðir rísa

Leikfélag MosfellssveitarAndlát við jarðarförHöfundur: Dean Craig, leikgerð María Guðmundsdóttir og Guðný María Jónsdóttir.Leikstjóri: Guðný María Jónsdóttir. Leikfélag Mosfellssveitar fer oft ótroðnar slóðir í verkefnavali sínu og svo er einnig nú. Þau vinna leikhandrit upp úr kvikmynd eða kvikmyndahandriti réttara sagt, Death at a Funeral, breskri gamanmynd frá 2007 sem reyndar hefur verið endurgerð fyrir ameríku líka. Þetta er uppátæki sem oft er reynt hin síðari ár bæði hjá áhugaleikfélögum, menntaskólaleikfélögum og helstu stórleikhúsum hér heima og erlendis. Nærtækt auðvitað að minnast á Fanny og Alexander í því samhengi. Það er ýmislegt við Dauða við jarðarför sem gerir verkið að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert