Author: lensherra

Tengdó frumsýnt á Litla sviðinu

Tengdó, nýtt leikverk eftir Val Frey Einarsson, verður frumsýnt á litla sviðinu næstkomandi fimmtudagskvöld, 29. mars, kl. 20. Hér er ráðist í gerð heimildaleikhúss þar sem skyggnst verður í persónulega sögu listamannanna. Leikhópurinn CommonNonsense hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar sýningar sem ramba á barmi myndlistar og leikhúss. Þau hafa áður m.a. sett upp Hrærivélina, CommonNonsense og Forðist okkur. Hópnum hefur bæst liðsstyrkur með leikstjóranum Jóni Páli Eyjólfssyni. Í forgrunni er áratugalöng leit „ástandsbarns“ að föður sínum og djúpstæð þörf hennar á að þekkja uppruna sinn en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag þá og nú. „Aðeins...

Sjá meira

Síðasta tækifæri til að sjá Súldarsker

Sérstök aukasýning verður á Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíói miðvikudagskvöldið 28. mars kl. 20. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda, en sýningum var hætt fyrir fullu húsi vegna anna. Meðal annars var Súldarsker tilnefnt til tvennra Grímuverðlauna. Hópurinn er nýkominn úr leikferð til Akureyrar þar sem sýningin var leikin tvisvar fyrir fullu húsi. Í tilefni þess var ákveðið að leyfa skerinu að rísa í allra síðasta sinn næstkomandi miðvikudagskvöld. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið...

Sjá meira

Ávarp Maríu Kristjánsdóttur á alþjóða leikhúsdeginum

„Verið velkomin í leikhúsið og slökkvið vinsamlegast á farsímanum“. Þessi  hefðbundnu orð, sem hljóma nú í upphafi hverrar leiksýningar, eru lausnarorð. Þau skapa ráðrúm til að aftengja sig frá nútíma nauð. Þau skapa þögn og í þögninni gangast leikendur og áhorfendur undir það samkomulag sem  þeir gerðu sín í millum fyrir öldum og aldrei hefur verið skráð á nokkurt blað: Innilokuð í rými ætlum við að eiga stund saman, taka okkur stöðu andspænis hvert öðru, bregðast hvert við öðru.  Þannig ætlum við saman að skapa nýjan þykjustu heim og gefa honum merkingu. Það eru hin miklu forréttindi leikhússins sem...

Sjá meira

Alþjóða leikhúsdagurinn 27. mars

Hinn þekkti bandaríski leikari og leikstjóri John Malkovich hefur samið ávarp alþjóða leikhúsdagsins í ár. Það er mér heiður að verða við beiðni Alþjóðlegu leiklistarstofnunarinnar um að skrifa ávarp í tilefni af alþjóðaleikhúsdeginum sem nú er haldinn hátíðlegur í 50 sinn. Ég beini eftirfarandi orðum til kollega minna í leikhúsinu, félaga og samferðamanna. Megi verk ykkar reynast sannfærandi og frumleg. Megi þau vera andrík, hjartnæm, íhugul og einstæð. Megi þau auðvelda okkur að finna svörin við spurningunni um hvað það þýðir að vera mannlegur og orð ykkar vera gædd einlægni, hreinskilni og þokka. Megi þið sigrast á erfiðleikum, ritskoðun,...

Sjá meira

Stútungasaga í Borgarnesi

Leikfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir leikritið Stútungasögu föstudaginn 23. mars kl. 20:00. Leikritið Stútungasaga er eftir Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Hjördísi Hjartardóttur og er í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssonar. Sýningar fara fram í sal MB. Leikritið byggir á gamansaman hátt á fornsögunum, einkanlega Sturlungu. Bændur berjast og brenna bæi hvers annars, gifta syni sína og dætur eftir hentugleikum og skreppa í heimsóknir til konungshjóna Noregs inn á milli bardaga, bruna og brúðkaupa. Frillulíf á Íslandi er einnig skoðað vandlega og skáldkona ein skrifar „söguna“ eftir því sem hún fær kálfsskinn til, en bóndi hennar er orðinn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert