Author: lensherra

Leikfélag A-Eyfellinga

Formaður: Guðrún Inga Sveinsdóttir ingaogasi@simnet.is leikfelausture@gmail.com 8460781 Gjaldkeri: Guðbjörg Konráðsdóttir gkonrads@me.com 8430766 Ritari: Margrét Tryggvadóttir mtrygg@ismennt.is Sími 8248889...

Sjá meira

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Rof

Þann 4. apríl næstkomandi frumsýnir Stúdentaleikhúsið nýtt íslenskt leikverk í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur (fyrrverandi deildarforseta leiklistardeildar LHÍ). Stúdentaleikhúsið samanstendur af 12 upprennandi sviðslistamönnum sem komu saman í janúar og lögðu upp með að gera sýningu út frá „devised“ aðferðum. Í hópnum eru meðal annars tveir tilvonandi leikarar sem fengu inngöngu í leikaradeild Listaháskóla Íslands nú í vor. Verkið ber nafnið Rof og var ort inn í Iðnó, þar sem leikhópurinn hefur verið við vinnu síðastliðnar vikur. Í grunninn fjallar verkið um ólíkan veruleika leikarans og áhorfandans og það hvernig þessir heimar skarast á. Um leið hefur hópurinn unnið út...

Sjá meira

Banastuð í Vestmannaeyjum

Föstudaginn 30. mars frumsýnir Leikfélag Vestmannaeyja söngleikinn Banastuð sem er byggður á bandarísku B-myndunum The Evil Dead I og II og Army of Darkness. Um er að ræða hressilegan og fyndinn söngleik með blóðugu ívafi og er sýningin mjög tæknilega krefjandi fyrir félagið. Fimm ungmenni stela kari og róa út í Elliðaey þar sem brotist er inn í lundakofa til þess eins að komast í náðugt frí. Fljótlega fara undarlegir hlutir að eiga sér stað og upphefst hröð, spennandi og skemmtileg atburðarrás sem enginn sá fyrir. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson. Félagið hefur undirbúið sýninguna mjög vel og sem...

Sjá meira

Síðustu sýningar hjá Umf. Reykdæla

Sýningum á revíunni Ekki trúa öllu sem þú heyrir (og ekki trúa öllu sem þú sérð) sem Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þessar mundir í félagsheimilinu Logalandi fer nú fækkandi. Leikritið hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir skemmtileg innansveitarkróníka en efnið á þó vel við víðar en Borgarfjörðinn. Sýnt er í kvöld, miðvikudag og næsta laugardag 31. mars og síðustu sýningar eru áætlaðar á miðvikudag 4. apríl og laugardag 7. apríl....

Sjá meira

Leikfélagið Peðið frumsýnir Lamb fyrir tvo

Hvernig myndurðu bregðast við  ef að gesturinn á næsta borði við þig á veitingastað fengi að borða matinn þinn? Líklega yrðir þú hissa, síðan reiður, og síðan myndirðu líklega hringja á lögguna. Það er einmitt það sem gerist í leikritinu Lambi fyrir tvo sem frumsýnt verður á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46 á laugardaginn kemur. Það er Leikfélagið Peðið sem setur upp í leikstjórn Lísu Pálsdóttur útvarpskonu, en verkið er eftir Jón Benjamín Einarsson, sem segja má að sé hirðskáld leikfélagsins. Peðið hefur sérhæft sig í að leika á börum, en það var stofnað á Grand Rokk við Smiðjustíg...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert