Author: lensherra

Date í Rýminu

Norðurbandalagið sýnir um þessar mundir leikritið Date eftir Jón Gunnar Þórðarson í leikstjórn höfundar. Sýnt er í Rýminu á Akureyri og hefjast sýnngar kl. 20. Sýningin fjallar um allt það sem þú átt ekki að gera á stefnumóti. Lélegar „pick-up“ línur, hvað á ekki að segja og hvernig á ekki að bera fram bónorð. Þessi atriði eru fléttuð saman og á milli atriða eru sumarleg söngatriði. Megintilgangur sýningarinnar er að koma öllum áhorfendum til að hlæja og skemmta sér vel. Jón Gunnar hefur meðal annars sett upp Hárið, Rocky Horror, Himnaríki og Með fullri reisn. Sýningar verða: Föstudagur 13.07.Laugardagur...

Sjá meira

Lokað í viku 31

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík, verður lokuð vegna sumarleyfa vikuna frá og með mánudegi 30. júlí til þriðjudags 7. ágúst. Opnunartími í sumar er annars eins og vanalega virka daga frá...

Sjá meira

Hverjir vilja fara til Monaco 2013?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Mondial du Theatre í Monaco dagana 19.-28. ágúst 2013. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað aukalega fyrir það. Ferðakostnaður er greiddur af þátttakendum sjálfum. Sýningin má ekki vera lengri en 60 mín. og í reglum hátíðarinnar segir; „„strongly advised to present predominantly visual performances““. Sækja skal um til Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir 1. september 2012. IATA (International Amateur Theatre Association)...

Sjá meira

Síðustu sýningar á FASTUR í Norðurpólnum

Leiksýningin FASTUR hefur verið sýnd í Norðurpólnum síðan 17. maí. Nú fer sýningum að ljúka og eru einungis tvær sýningar eftir. Önnur er fimmtudaginn 28. júní og sú síðasta fimmtudaginn 5. júlí. Báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og góða dóma en hér má sjá nokkur orð gagnrýnenda: Benedikt Karl er menntaður trúður og sýndi dásamlega tækni í sýningunni – jafnvel svo að maður greip andann á lofti eða greip í fáti í næsta mann þegar mest gekk á. Hann vakti líka vissulega hlátur, jafnvel dillandi hlátur, en það besta við sýninguna var samt...

Sjá meira

Aukasýning á Dagur til að drepa sig

Þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.00 verður aukasýning á leikþættinum Dagur til að drepa sig eftir Jón Benjamín Einarsson. Það er Leikfélagið Peðið sem sýnir og er verkið í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Sýnt er á bar 46 Hverfisgötu 46. Það er enginn til frásagnar um það hvenær sá dagur kemur sem gott er að drepa sig. Eitt er víst, að dagurinn sem Jóhannes velur er ekki góður. En hvernig átti hann að vita það þegar hann ákvað að stökkva fram af hengifluginu. Maður getur bara aldrei verið viss um neitt. Ekki einu sinni að yfirvofandi sjálfsmorð, verði ekki að einhverju...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert