Author: lensherra

Leikárið 2011-12 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Hér er síðbúið yfirlit yfir starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2011-12. 39 leikfélög settu upp leiksýningar á árinu sem er nákvæmlega sami fjöldi og á síðasta leikári en aðildarfélögunum fjölgaði úr 60 í 63 á leikárinu. Alls settu félögin upp 104 verk sem sýnd voru í heildina 579 sinnum og í þeim tóku þátt 1.732 manns. Heildarfjöldi félaga í áhugaleikfélögunum var 2.705 og áhorfendur á sýningunum voru 37.284. 20 best sóttu sýningarnar á leikárinu voru: 1. Lína langsokkur, Leikfélag Hveragerðis, – 1931 áhorfandi á 24 sýningum 2. Óværuenglarnir, Borgarbörn – 1638 áhorfendur á 19 sýningum 3. Í gegnum...

Sjá meira

Jesús litli kemur með jólin

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 4. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar og var valin sýning ársins og leikverk ársins. Jesús litli fór í leikferð til Spánar á síðasta ári þar sem hún hlaut frábærar viðtökur enda mannbætandi upplifun í hæsta gæðaflokki! Sýningar hefjast 4. desember Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll....

Sjá meira

Ársrit Bandalagsins 2011–12 komið út

Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar geti kynnt sér hvað er að gerast í áhugaleikhúsinu. Hér er má sækja ársritið. Leikfélög og einstaklingar geta þó pantað útprent ef það er gert fyrir mánudaginn 3. desember, Kostnaður er þá 2.000 kr. fyrir útprentið og ef þið viljið fá þetta gormað inn...

Sjá meira

Jólaleg dagskrá hjá LA í desember

Mikið verður um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar í desember, tvö jólaleikrit verða á fjölum þess auk þess sem leikfélagið stendur fyrir leiklestri í samvinnu við Akureyrarakademíuna og Minjasafn Akureyrar og hefur hann hlotið nafnið Upprisa hinna nafnlausu. Jólaleikritin eru Ef ég væri jólasveinn… og Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson. Ef ég væri jólasveinn… var frumsýnt síðastliðin sunnudag og skilaði brosandi og sönglandi leikhúsgestum á öllum aldri út í vetrarmyrkrið. Einungis eru fjórar sýningar eftir af þessarri íslensku frumsköpun: sunnudaginn 2. desember kl. 14.00 og 16.00 og sunnudaginn 9. desember kl. 14.00 og 16.00. Verkið hentar jólabörnum á...

Sjá meira

Jólaævintýrið sýnt í Iðnó

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember. Sýningin er rétt undir klukkustund í flutningi. Að þessu sinni fjallar sýningin um jólaævintýri stúlkna á munaðarleysingjahæli. Þeim áskotnast jólaglerkúla sem er þeim töfrum gædd, að við hvern hristing birtast ýmsar þekktar ævintýrapersónur úr kúlunni. Að vissu leyti skapar þetta spennu og gleði en verra er þó að þær persónur sem birtast, eru ekki...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur