Author: lensherra

Síðustu sýningar á Spilaborgum Hugleiks

Nú um helgina verða allra síðustu sýningar á vorverkefni Hugleiks, Spilaborgum. Sýnt verður í kvöld, föstudaginn 10 maí, og svo laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. en aðeins sex sýningar voru áformaðar þannig að nú fer hver að verða síðastur. Allar sýningarnar eru kl. 20 og sýnt er í húsnæði félagsins að Eyjarslóð 9. Höfundur er Ásta Gísladóttir og leikstjórar Þorgeir Tryggvason og Sigurður H. Pálsson. Leikritið fjallar um hvað gerist þegar ungur maður finnur tösku fulla af peningum ásamt absinthe-flösku og illa kveðnu ljóði. Hann á í talsverðum vandræðum með að reikna út hvernig best er að vinna úr...

Sjá meira

Leikfélag MA sýnir Þrek og tár

Nú á dögunum frumsýndi Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hið sívinsæla verk Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar. Verkið var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks. Verkið er sýnt í Rýminu, húsnæði Leikfélags Akureyrar. Davíð, ungur og hæfileikaríkur Reykvíkingur, snýr aftur heim til Íslands eftir nokkurra ára búsetu erlendis. Er hann tekur síðustu sporin að heimahögunum ferðast hugur hans í gegnum minningar liðinna tíma. Sögusviðið er Reykjavík uppvaxtarára hans við upphaf sjöunda áratugarins. Hann býður áhorfendum með í magnað ferðalag fullt af söng, dansi,...

Sjá meira

Uppselt á 10 sýningar í röð

Þann 28. apríl síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks nýtt íslenskt leikrit samið í kringum tónlist Geirmundar Valtýssonar. Leikritið nefnist Tifar tímans hjól og var það skrifað af Árna Gunnarssyni og Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni, sem einnig leikstýrði. Uppselt hefur verið á þær 8 sýningar sem búið er að sýna og er einnig uppselt á næstu tvær og hefur því verið bætt við tveimur sýningum, sunnudaginn 12. maí og Hvítasunnudag 19. maí og hefjast báðar sýningarnar kl. 20.30. Panta má miða í síma 849 9434 virka daga frá 16 – 18 og 
einnig klukkustund fyrir sýningu í síma og í Bifröst. Sýningarplanið:

9....

Sjá meira

Stöngin inn er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins

Samvinnuverkefni Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar, Stöngin inn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013 af valnefnd Þjóðleikhússins. Fulltrúi Þjóðleikhússins, Þórhallur SIgurðsson, tilkynnti niðurstöðuna á aðalfundi BÍL sem haldinn var í Logalandi í Borgarfirði nú um helgina. Stöngin inn er eftir Guðmund Ólafsson sem jafnframt leikstýrir. Félögunum hefur verið boðið sýna verkið í Þjóðleikhúsinu. Greinargerð valnefndar: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta sinn. Að þessu sinni sóttu alls sautján leikfélög um að koma til greina við valið, með jafn margar sýningar. Það var afar ánægjulegt að skoða þessar fjölbreyttu sýningar, víðsvegar að af landinu og verða enn...

Sjá meira

Lab Loki frumsýnir Hvörf

Laugardaginn 4. maí kl. 19 frumsýnir leikhópurinn Lab Loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið, nýtt sviðslistarverk sem byggir hugarheim sinn á svokölluðu Guðmundar og Geirfinnsmáli. Höfundar eru Rúnar Guðbrandsson og Sjón en Rúnar er jafnframt leikstjóri verksins. Lab Loki hefur starfað að tilraunum og rannsóknum á sviði leiklistar í tuttugu ár jafnt hérlendis sem erlendis og hefur sú starfsemi getið af sér á þriðja tug sviðsverka og viðburða. Hvörf er ferðalag um völundarhús sálar og samfélags. Hér er annars vegar um að ræða hreinan sviðsskáldskap er lýtur sínum eigin lögmálum og nýtir sér margslungin meðöl leiklistarinnar og óheft hugarflug til...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert