Author: lensherra

Gilitrutt frumsýnt í Elliðárdal

Leikhópurinn Lotta frumsýnir miðvikudaginn 22. maí kl. 18.00 nýjan íslenskan söngleik um tröllskessuna Gilitrutt í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Lotta setur sýningar sínar upp úti undir berum himni og ferðast með þær um allt land. Einnig er verkið á sama tíma gefið út á hljóðdiski. Gilitrutt er skrifað af Önnu Bergljótu Thorarensen, sem skrifar nú sitt þriðja verk fyrir hópinn en hún skrifaði einnig Stígvélaða köttinn og Mjallhvíti. Hér blandar hún ævintýrunum um Búkollu, geiturnar þrjár og tröllskessuna Gilitrutt saman í splunkunýtt og sprellfjörugt leikrit. Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir. Verkið fjallar um sprenghlægileg uppátæki tröllskessunnar Gilitruttar og bróður hennar Bárðar...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Hvörfum

Föstudaginn 24. maí og laugardaginn 25. maí verða síðustu sýningar Lab Loka á leikverkinu Hvörf sem byggir hugarheim sinn á svokölluðu Guðmundar og Geirfinnsmáli. Verkið er sýnt í samvinnu við Þjóðleikhúsið og eru höfundar þess Rúnar Guðbrandsson og Sjón en Rúnar er jafnframt leikstjóri verksins. Leikritið hefur hlotið afbragðs viðtökur áhorfenda enda kafar það ofan í umdeildasta sakamál 20. aldarinnar á Íslandi. Hvörf er ferðalag um völundarhús sálar og samfélags. Hér er annars vegar um að ræða hreinan sviðsskáldskap er lýtur sínum eigin lögmálum og nýtir sér margslungin meðöl leiklistarinnar og óheft hugarflug til að skapa veröld sem á...

Sjá meira

4 x Tveir frumsýndir í Kópavogi

Leikdagskráin 4 x Tveir verður frumsýnd hjá Leikfélagi Kópavogs sunnudaginn 19. maí kl. 20. Þar verða fluttir fjórir leikþættir, þar af þrír eftir íslenskar leikskáldkonur. Leikhópurinn samanstendur af þátttakendum á leiklistarnámskeiði sem leikstjórinn Hörður Sigurðarson hélt hjá LK í vetur og eru flestir að stíga sín fyrstu spor á sviði. Miðaverð er 1.000 kr. og hægt er að panta miða á www.midakaup.is/kopleik eða með því að senda póst á midasala@kopleik.is. Þættirnir eru Spurningar fyrir framan ísskápinn í þýðingu Kristínar Gestsdóttur, Love me tender eftir Hrefnu Friðriksdóttur, Viltu vatn eftir Jónheiði Ísleifsdóttur og Þriðjudagskvöld eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Sjá nánar á vef Leikfélags...

Sjá meira

Stjórn Bandalagsins óbreytt

Þann 4. maí sl. var aðafundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Á fundinn mættu um 60 fulltrúar frá 19 leikfélögum sem er meira en yfirleitt hefur verið undanfarin ár. Þorgeir Tryggvason var endurkjörinn formaður og Ólöf Þórðardóttir í stjórn. Varastjórn er líka óbreytt nema hvað Salbjörg Engilbertsdóttir, Leikfélagi Hólmavíkur tók sæti Magnúsar J. Magnússonar sem gaf ekki kost á sér. Stjórn Bandalagsins er því þannig skipuð: Þorgeir Tryggvason, Reykjavík, formaðurGuðfinna Gunnarsdóttir, Selfossi, varaformaðurÓlöf Þórðardóttir, Mosfellsbæ, ritariHalldór Sigurgeirsson, Eyjafjarðarsveit, meðstjórnandiog Þráinn Sigvaldason, Borgarfirði eystri, meðstjórnandi Í varastjórn sitja Þrúður Sigurðar, Þorlákshöfn, Bernharð Arnarson, Hörgárdal, Embla Guðmundsdóttir,...

Sjá meira

Vorstarf Leikfélags Selfoss

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn þann 30. apríl síðastliðinn. Að venju var rennt yfir starf liðins árs, sem var í senn geysiöflugt og fjölbreytt. Má þar nefna söngnámsskeið, Hugarflug og svo uppsetningu á Þreki og tárum, sem gekk mjög vel. Nokkrir nýir félagar gengu til liðs við félagið og margir buðu sig fram til starfa. Sigrún Sighvatsdóttir ákvað hætta sem formaður leikfélagsins eftir áralanga setu í því embætti og fékk hún mikið lof fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Að sögn fróðra félaga hefur fjöldi þeirra sem bauð sig fram til stjórnar aldrei verið meiri og kosningarnar spennandi...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert